UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Nýverið gaf Kvenfélag Gnúpverja UNICEF styrk að upphæð 20 þúsund krónum. Þær safna pening með sjálfboðavinnu og deila söfnunarfé til margra góðgerðarmála. Þær hafa áður gefið UNICEF styrki og erum við þeim hjartanlega þakklát fyrir stuðninginn og óeigingjarnt starf í þágu góðra málefna.
Halla Guðmundsdóttir, gjaldkeri kvenfélagsins, segir að þær geri hitt og þetta til að safna fé. „Við sjáum um mjög fínar erfisdrykkjur fyrir sanngjarnt verð. Seljum jólakort til styrktar sjúkrastofnunum í héraðinu, styrkjum margvísleg líknarfélög og SOS barnaþorp fá sem svarar uppihaldi eins fósturbarns.“ Árgjaldið í félaginu er 3.000 krónur og eru konurnar alls 40. Halla segir að lokum að þær séu alltaf að „gera eitthvað“ þrátt fyrir að þær séu ekki margar og hafi ekki mikla peninga.
UNICEF á Íslandi á margt að þakka kvenfélögum í landinu og hefur verið í formlegu og óförmlegu samstarfi við kvenfélög um land allt til fjölda ára að ógleymdu samstarfi við Kvenfélagasambandið í heild. Áður en landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi var stofnuð seldi Félag háskólakvenna jólakort UNICEF í hálfa öld. Á þeim grunni hefur UNICEF byggt upp sitt starf.
Við færum Kvenfélagi Gnúpverja bestu þakkir fyrir stuðninginn.