hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Um 800 börn og ungmenni taka þátt í útvarpsþætti ungmenna (e. child-to-child radio programme) í Mósambík. Þau taka viðtöl við önnur ungmenni og koma upplýsingum á framfæri til þúsunda jafnaldra sinna í gegnum vinsælasta miðilinn í Afríku; útvarpið.
Ungmennin gera 23 mismunandi þætti, 14 þeirra eru á hinum ýmsu etnísku tungumálum sem töluð eru í Mósambík og níu eru á portúgölsku.
Efnistökin eru allt frá leikum og listum yfir í alvarlegri málefni á borð við HIV/alnæmi, ofbeldi gegn börnum, o.s.frv. Útvarpsverkefnið spilar þannig stóran þátt í forvörnum gegn HIV, eiturlyfjum, ofbeldi, o.fl.
UNICEF hefur stutt verkefnið síðan árið 2000 og hefur það vaxið hratt á síðustu misserum. Árið 2007 vann Radio Mozambique child-to-child programme hin alþjóðlegu verðlaun International Children’s Day of Broadcasting Award for Radio Excellence fyrir það virka hlutverk sem ungmenni spila í þróun, framleiðslu og flutningi efnis.
Velgerðarsjóður Ingibjargar Kristjánsdóttur og Ólafs Ólafssonar, Aurora, styrkti útvarpsverkefnið í Mósambík um 3,5 milljónir króna í febrúar 2009.
Þátttaka barna og ungmenna um allan heim
UNICEF leggur mikla áherslu á þátttöku og virkni barna í samfélaginu. Útvarpsverkefni sem þetta er dæmigert fyrir þau þátttöku-verkefni sem UNICEF stendur að um allan heim og miða að því að gefa börnum og ungmennum þjálfun og vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri.
Auk þess er fræðsluhluti verkefnisins mikilvægur, en UNICEF telur að börn og ungmenni geti komið skilaboðum um t.d. HIV/alnæmi, hreinlæti, o.fl., vel til skila meðal jafnaldra sinna ef þau fá tækifæri til þess.