93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
UNICEF telur það skyldu sína að veita barnshafandi konum aðstoð og vernd. Með því að tryggja heilsu þeirra á meðgöngu og veita þeim fræðslu um umönnun ungabarna er líklegra að börnum þeirra farnist betur. Fræðsla um næringu og hreinlæti til helstu umönnunaraðila ungabarna getur bjargað lífi þeirra.
Sömuleiðis leggur UNICEF mikla áherslu á brjóstagjöf fyrstu sex mánuði ævinnar, en rannsóknir sína að það bjargar lífi barna og gerir ónæmiskerfi þeirra sterkara.
UNICEF veitir heilbrigðisstarfsfólki og þorpskonum þjálfun til að taka á móti börnum. Einnig er samfélögum veitt fræðsla um umönnun kvenna við barnsburð. Þá gefur UNICEF út bæklinga og veggspjöld með fræðslu fyrir nýbakaða foreldra og heilbrigðisstarfsfólk.