Vissir þú að...

UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.

Þú ert hér:  

Leiðarljós í starfi

Barnasáttmálinn

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, eða Barnasáttmálinn, var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember 1989. Hann var undirritaður fyrir hönd Íslands þann 26. janúar 1990. Þann 13. maí 1992 heimilaði Alþingi ríkisstjórn að fullgilda hann með ályktun og öðlaðist hann gildi hér á landi þann 27. nóvember 1992.

Barnasáttmálinn hefur verið staðfestur af 192 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og er hann sá mannréttindasamningur, sem hefur verið staðfestur af flestum þjóðum.

Samningurinn hefur ekki verið lögfestur á Íslandi. Fullgilding hans felur þó í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði hans.

Hér má sjá allar greinar Barnasáttmálans á íslensku þar sem þær hafa verið endurritaðar af ungmennum, en þær voru settar saman í tilefni af 18 ára afmæli Barnasáttmálans.

Þúsaldarmarkmið SÞ

Árið 2000 setti alþjóðasamfélagið sér markmið í þróun til ársins 2015. Þetta eru í dag kölluð Þúsaldarmarkmiðin. UNICEF tekur þátt í þessu alþjóðaátaki og einbeitir sér helst á þeim sviðum sem lúta að markmiðum 1 til 6. Markmiðin eru í heildina átta og um þau má lesa hér.

Árlega gefa Sameinuðu Þjóðirnar út stöðuskýrslu um Þúsaldarmarkmiðin og önnur mál þeim tengd. Hér má nálgast þær.