126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
UNICEF á Íslandi hefur í gegnum tíðina staðið að gerð ýmis konar námsefnis til að efla þekkingu á réttindum barna. Hér til hliðar má fræðast nánar um það efni sem til er.
Allir eiga rétt er námsvefur fyrir efri bekki grunnskóla. Efni hans er ætlað að auka þekkingu ungmenna á mannréttindum og draga úr fordómum.
Öll börn eiga rétt er bæklingur um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindi barna sem ætlaður er miðstigi.
Námsvefur um barnasáttmálann, www.barnasattmali.is, er gagnvirkur námsvefur um þennan mikilvæga mannréttindasáttmála sem unnin er í samstarfi við Námsgagnastofnun, Barnaheill og umboðsmann barna. Sá hluti vefjarins sem ætlaður er yngsta stigi er tilbúinn, en efni fyrir miðstig og efsta stig fer í loftið á árinu.
Stjórnlög unga fólksins er samstarfsverkefni UNICEF, umboðsmanns barna og Reykjavíkurborg sem miðar að því að fræða börn og unglinga um íslensku stjórnarskrána og innihald hennar - og koma ábendingum þeirra á framfæri. Vefurinn stjornlogungafolksins.is er fræðslu- og vakningarsíða um stjórnaskrána, þar sem meðal annars má nálgast stutt, teiknuð fræðslumyndbönd.