á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Hin sívinsælu jólkort UNICEF eru komin í verslanir og á pósthús um land allt. Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hefa aldrei verið fleiri en í ár. Nálgast má jólakortin má nálgast á pósthúsum um land allt og í verslunum Pennans/Eymundssonar, Bókabúð Máls og menningar, Iðu og Bóksölu stúdenta.
Pdf skjal af jólakortunum í ár.
Gjafavara og leikföng UNICEF verða seld í Bókabúð Máls og menningar sem sendir pantanir um land allt í póstkröfu. Hin sívinsæla jólakúla fæst svo einnig í Iðu í Lækjargötu.
Pdf skjal með gjafavörum UNICEF.
Fyrirtæki og stofnanir geta pantað kort á netfangið kort@unicef.is.
Um jólakort og gjafavörur UNICEF
Jólakort Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hafa verið seld á Íslandi í næstum hálfa öld. Þau eru mikilvægur liður í fjáröflun okkar en allur ágóði af sölu kortanna rennur til verkefna Barnahjálparinnar.
Gjafavara UNICEF er mjög vönduð og á góðu verði. Þú getur einnig verið viss um að ekkert í framleiðsluferli vörunnar sem við seljum orki tvímælis; að börn hafi ekki verið notuð við framleiðslu hennar, að engin náttúruspjöll séu unnin af framleiðslufyrirtækinu og að fyrirtækið sé ekki tengt misferli eða spillingu. Með því að kaupa vöru frá UNICEF styrkir þú svo að sjálfsögðu gott málefni.