Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Íslenska ríkið

Íslenska ríkið tekur þátt í starfi UNICEF á ýmsum sviðum og hefur stuðningur þess aukist jafnt og þétt í gegnum tíðina. Á síðustu árum hefur utanríkisráðuneytið haft Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í stefnu sinni á sviði þróunarsamvinnu. Sérstök áhersla hefur m.a. verið lögð á menntun stúlkna og er UNICEF tilgreind sem lykilstofnun í samstarfi á því sviði, ásamt því hvað varðar heilsugæslu barna og endurreisn samfélaga.

Framlög
Framlög íslenska ríkisins til UNICEF renna ekki í gegnum landsnefndina heldur eru þau send beint til höfuðstöðva UNICEF í New York og þaðan til verkefna víða um heim. Framlögin koma því ekki fram í reikningum landsnefndarinnar að undanskildum rekstrarstyrk vegna samstarfssamnings UNICEF á Íslandi við utanríkisráðuneytið.
Íslensk stjórnvöld hafa markað þá stefnu að halda áfram öflugum stuðningi við UNICEF. Á milli áranna 2010 og 2011 hækkuðu óeyrnamerkt framlög Íslands til UNICEF alþjóðlega um 75% sem hlutfall af heildarframlögum til stofnunarinnar. Óeyrnamerkt framlag er sá styrkur sem UNICEF er frjálst að nýta þar sem þörfin er mest hverju sinni. Slík framlög eru m.a. mikilvæg til að bregðast við þar sem neyð skapast og veita aðstoð til svæða og málaflokka sem ekki njóta mikillar athygli.

Heildarframlög íslenska ríkisins 2007-2011 voru eftirfarandi (tölur frá 2012 eru ekki komnar):

2007 - 87,1 m. kr.
2008 - 124,6 m. kr.
2009 - 158,2 m. kr.
2010 - 120,4 m. kr.
2011 - 133,1 m. kr.

Utan óeyrnamerktra framlaga hefur Ísland styrkt mörg afmörkuð verkefni UNICEF á liðnum árum. Hér að neðan er upptalning á nýjustu samstarfsverkefnum UNICEF og íslenska ríkisins.

Stuðningur við heilsugæslu í Gíneu-Bissá
Samkvæmt fjórða Þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um þróun er stefnt að því að lækka dánartíðni barna yngri en fimm ára um tvo þriðju frá 1990 til 2015. Í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá er dánartíðni barna ein sú hæsta í heimi. Í samstarfi við UNICEF á Íslandi ákvað utanríkisráðuneytið að styrkja verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá á sviði heilsugæslu árin 2008-2010. Í því fólst m.a. að bólusetja börn, kaupa og dreifa malaríunetum og innleiða fræðslu um hreinlæti og sjúkdóma.

Palestína
Íslenska ríkið hefur styrkt starfsemi UNICEF í Palestínu með beinum framlögum til heilsuverndar barna og með því að kosta stöðu hjúkrunarfræðings sem sinnir mæðra- og ungbarnavernd á Gaza. Heilsuverndarnálgun UNICEF í Palestínu miðar mikið að vernd og umönnun barna sem líða mjög fyrir ástandið á hernumdu svæðunum. Næringarskortur er útbreiddur, börn slasast og deyja af völdum jarðsprengna, líkamlegt ofbeldi er algengt og börn þjást af kvíðaröskun og þunglyndi. Verkefni UNICEF felast m.a. í bólusetningum, menntun, sálgæslu og fræðslu um næringu og hreinlæti.

Baráttan gegn limlestingum á kynfærum kvenna
Árið 2011 styrkti Ísland samstarfsverkefni UNICEF og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) sem miðar að afnámi limlestinga á kynfærum kvenna. Um er að ræða viðamikið verkefni sem byggist á stuðningi við aðgerðir ríkja sem og einstakra samfélaga til að sporna við þessari skaðandi hefð.
Meginmarkmið verkefnis UNICEF og UNFPA er að ýta undir jákvæðar samfélagsbreytingar sem sporna gegn afskurði og limlestingum. Nálgunin er heildstæð og byggir á víðtæku samráði við ríki, sveitarfélög, trúarleiðtoga, fjölmiðla, félagasamtök og mennta- og heilbrigðisgeirann í hverju landi fyrir sig. Aukin fræðsla og samstarf við alla fyrrgreinda aðila hefur áhrif á allt frá viðhorfum í grasrót samfélaga upp til laga, reglugerða og verkferla stjórnvalda. Verkefnið er framkvæmt í átta löndum í Vestur-Afríku og tíu löndum í Austur-Afríku. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin telur að 100-140 milljónir kvenna hafi orðið fyrir limlestingu á kynfærum sínum og UNICEF áætlar að árlega eigi þrjár milljónir stúlkubarna á hættu að hljóta sömu örlög.

Íslenska friðargæslan
Samstarf Íslensku friðargæslunnar og UNICEF var formfest með samningi í febrúar 2007. Fjöldi Íslendinga hefur verið sendur á vettvang til starfa fyrir UNICEF og sinnt fjölbreyttum störfum, allt frá birgðastjórnun til endurhæfingar barnahermanna.
Árið 2008 tóku Íslenska friðargæslan og UNICEF upp nýtt samstarfsverkefni. Komið var á fót viðbragðslista sem gerir UNICEF kleift að senda upplýsingafulltrúa á vettvang þegar neyðarástand brýst út eða þar sem brýn þörf er fyrir slíkan sérhæfðan starfskraft. Níu Íslendingar sátu námskeið sem UNICEF hélt í Reykjavík í september 2008 og tveir sóttu námskeið í Kaupmannahöfn árið eftir. Í kjölfarið hafa sjö stöður upplýsingafulltrúa á vegum UNICEF verið mannaðar af Íslendingum í tvo til sex mánuði í senn; í Georgíu, Jerúsalem/Palestínu, Srí Lanka, Tadjikistan, Súdan, Pakistan og Jemen. Að auki var starfsmaður á Sómalíuskrifstofu UNICEF í Keníu ráðinn eftir sama viðbragðssamningi.
Auk þess hafa tveir friðargæsluliðar starfað fyrir UNICEF í Suður-Súdan yfir lengri tíma, tveir fyrir UNICEF í Palestínu og einn í Jórdaníu.