Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Hvar starfar UNICEF?

UNICEF er leiðandi í barnahjálp í heiminum í dag. UNICEF starfar í 190 löndum.

Hjarta starfsemi UNICEF fer fram á vettvangi. Allar landsskrifstofurnar vinna út frá ákveðnum verkefnum í gegnum stefnu sem er þróuð með ríkisstjórn þess lands. Þetta er yfirleitt 5 ára áætlun sem gengur út á að gera réttindi kvenna og barna að raunveruleika.

UNICEF rekur Innocenti rannsóknarskrifstofu í Flórens á Ítalíu.

Margir í hinum vestræna heimi heyra fyrst um UNICEF í gegnum starf hinna 36 landsnefnda. Landsnefndir eru eins og frjáls félagasamtök í hverju landi fyrir sig. Hlutverk landsnefndanna er að vekja athygli á réttindum barna, að afla fjár, selja kort og vöru frá UNICEF. Landsnefndirnar afla saman þriðjungs auðlinda UNICEF.

Meiri upplýsingar um UNICEF er hægt að nálgast hér:

Heimasíða höfuðskrifstofu UNICEF
Heimasíða Svæðisskrifstofa UNICEF