Upplýsingasíða heimsforeldra

Á hverjum degi snertir UNICEF líf bágstaddra barna í yfir 190 löndum. Sem heimsforeldri UNICEF styður þú ekki við eitt ákveðið barn heldur renna framlög þín til verkefna sem gagnast mörgum börnum. Með þinni hjálp veitir UNICEF börnum menntun, heilsugæslu og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og sjúkdómum.
Með því að gerast heimsforeldri UNICEF tekur þú þátt í þessum mikilvægu verkefnum með okkur og færir börnum um allan heim gleði og von.
Ef þú ert ekki þegar heimsforeldri, getur þú skráð þig á skráningarsíðu okkar eða hringt í síma 552 6300 og slegist í hópinn.
Sem heimsforeldri...
- sérðu til þess að ungabörn fái nauðsynlega næringu, umhyggju, bólusetningar og heilsugæslu,
- veitir þú börnum, jafnt stúlkum sem drengjum, góða grunnmenntun,
- fræðir þú börn og ungmenni um réttindi sín og gefur þeim tækifæri á að láta rödd sína heyrast,
- fyrirbyggir þú HIV-smit, veitir smituðum umönnun og sérð til þess að börnum sem eru munaðarlaus af völdum alnæmis, sé veittur stuðningur,
- verndar þú börn gegn stríði, ofbeldi, misnotkun og vinnuþrælkun.
- hjálpar þú þar sem þörfin er mest.
- gerir þú UNICEF kleift að vera með þeim fyrstu sem mæta á svæðið þegar hamfarir bresta á.
- styður þú við áframhaldandi hjálparstarf UNICEF eftir að kastljós fjölmiðla er farið annað
- leggur þú þitt af mörkum við hjálparstarf á svæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli.
Hér finnur þú ársyfirlit og fréttabréf heimsforeldra. Þar kemur fram hvernig framlögin nýtast og saga barna sem notið hafa góðs af verkefnum er sögð. Fréttabréfið kemur út tvisvar á ári og allir heimsforeldrar fá auk þess ársyfirlit í byrjun hvers árs.
Látið okkur endilega vita um breytingar á heimilisfangi, tölvupósti eða greiðslufyrirkomulagi.


