UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Hægt að gerast aðdáandi dags rauða nefsins á Facebook. Á síðunni er að finna nýjustu fréttir í aðdraganda stóra dagsins sem og skemmtilegt efni frá því að dagur rauða nefsins var haldinn í fyrsta sinn hérlendis árið 2006. Við hvetjum sem flesta Facebook-notendur til að gerast aðdáendur hér.
Hugmyndin að baki Degi rauða nefsins er að gleðjast og gleðja aðra, og um leið safna fé fyrir börn sem búa við sára neyð. Fólk fær tækifæri til þess að kynnast aðstæðum barna í fátækari löndum heims og rétta fram hjálparhönd með því að gerast heimsforeldrar.
Nánar má fræðast um dag rauða nefsins hér.