Þú ert hér:  

Erlendar fréttir

 

Sannar sumargjafir á alþjóðlega malaríudeginum

24.apr.2013

Sumarið nálgast óðum! Á morgun er hins vegar ekki einungis sumardagurinn fyrsti hér á Íslandi heldur einnig alþjóðlegi malaríudagurinn. Malaría er banvænn sjúkdómur sem smitast með moskítóflugum og herjar á milljónir manna í yfir 100 löndum – ekki síst börn. Af þessu tilefni hvetjum við fólk til að gefa moskítónet sem sumargjafir!  


 


Óvenjuleg yfirlýsing vegna Sýrlands: Ákall til leiðtoga

16.apr.2013

Í ákalli sem framkvæmdastjórar allra helstu stofnana Sameinuðu þjóðanna sendu frá sér í morgun eru stríðandi fylkingar í Sýrlandi og pólitískir leiðtogar ríkja sem geta haft áhrif á stöðu mála sárbeðnir um að knýja fram pólitíska lausn á "hinum hrottafengnu átökum". 

 


 


Sýrland: "Nóg komið" - textinn allur á ensku

16.apr.2013

Framkvæmdastjórar UNICEF og annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna sendu í morgun frá sér óvenjulegt ákall til allra þeirra pólitísku leiðtoga og aðila sem tengjast stríðinu í Sýrlandi, þar sem þeir eru beðnir að nota áhrif sín til að "bjarga fólki í Sýrlandi og bjarga svæðinu öllu frá stórkostlegum hörmungum". Textinn í heild sinni er hér.

 

 


 


Ný áætlun UNICEF og WHO gæti bjargað 2 milljónum barnslífa á ári

12.apr.2013

UNICEF kynnir í dag í samstarfi við WHO nýja alþjóðlega aðgerðaráætlun gegn lungnabólgu og niðurgangspestum. Áætlunin felur í sér stórsókn gegn tveimur helstu dánarorsökum ungra barna í heiminum. 

 


 


Yfirlýsing frá UNICEF vegna skýrslu samráðshóps stjórnvalda um aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi

05.apr.2013
UNICEF á Íslandi fagnar þeim skýra vilja til úrbóta sem birtist í   skýrslu samráðshóps stjórnvalda um aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi. Skýrslan var kynnt fyrir stundu. Tillögurnar í skýrslunni eru flestar kostnaðargreindar og hugsaðar til lengri tíma, sem er afar mikilvægt.


 


 


Endurfundir í A-Kongó

02.apr.2013
Langvarandi átök í Austur-Kongó haft bitnað einna verst á börnum landsins. UNICEF og samstarfsaðilar vinna að því að skrásetja börn sem orðið hafa viðskila við foreldra sína og sameina þau fjölskyldum sínum að nýju. Í síðustu viku voru 17 börn sameinuð foreldrum sínum aftur og það er óhætt að segja að þar hafi orðið miklir fagnaðarfundir.

 


 


Fatímusjóðurinn styrkir neyðarsöfnun

05.feb.2013

Í gær afhentu fulltrúar Fatímusjóðsins UNICEF á Íslandi tveggja milljón króna framlag í neyðarsöfnun UNICEF fyrir sýrlensk börn á flótta. Stuðningnum verður bæði varið í verkefni innan Sýrlands og í flóttamannabúðum sem komið hefur verið upp í nágrannaríkjunum. 


 


Vetur í Sýrlandi

15.jan.2013

 

Snjór og kuldi hefur herjað á svæði í Sýrlandi, Jórdaníu, Tyrklandi og Írak og
áratugs gömul kuldamet slegin. Meira en tvær milljónir flóttafólks frá Sýrlandi
hafa leitað hælis í nágrannaríkjunum eða eru á vergangi í heimalandinu.
Sem áður eru börnin sérlega viðkvæm fyrir afleiðingum kuldans  þar sem
snjórinn hægir á dreifingu hjálpargagna.

 


 


Betra líf barna á Haítí

14.jan.2013

Þrjú ár eru liðin frá mannskæðum jarðskjálfta á Haítí sem hafði í för með sér mikla eyðileggingu og neyð. Ný skýrsla gefur þó til kynna að aðbúnaður barna í landinu fari batnandi og til að mynda hefur hlutfall 11 ára barna sem sækja skóla hækkað mikið frá því áður en hamfarirnar riðu yfir.  


 


Gleðilegt ár frá UNICEF á Íslandi

04.jan.2013

Starfsfólk UNICEF á Íslandi óskar ykkur öllum gleðilegs árs með kærri þökk fyrir stuðning og hlýhug á liðnum árum. Við höldum ótrauð áfram inn í árið 2013 og tökumst á við áframhaldandi verkefni og áskoranir með ykkar hjálp. 


 


Flóðin í Pakistan

22.okt.2012

Flóðin í Sindh, Balochista og Punjab héruðunum í Pakistan hafa sett líf þúsunda barna úr skorðum á svæðinu sem fyrir var berskjaldað vegna fátæktar og árvissra flóða.

 


 


Lífsnauðsynleg hjálp

12.okt.2012

UNICEF hefur aukið hjálparstarf sitt innan Sýrlands og í nágrannalöndunum til muna á undanförnum mánuðum til þess að koma til móts við vaxandi neyð barna og fjölskyldna. Yfir ein milljón barna eru á vergangi innan Sýrlands og meira en 100 þúsund sýrlensk börn hafi hrakist til Líbanon, Jórdaníu, Tyrklands og Írak. 


 


Starf UNICEF í Sýrlandi

26.sep.2012

UNICEF vinnur að því, ásamt samstarfsaðilum sínum í Sýrlandi, að koma flóttabörnum til hjálpar með heilsugæslu og læknisaðstoð auk þess að útvega þeim matvæli og annars konar hjálpargögn. 


 


Tónleikar á Café Rosenberg

20.sep.2012

 

Jón Jónsson, Friðrik Dór, Magni Ásgeirsson, Ragnheiður Gröndal, Védís Hervör og Varsjárbandalagið koma fram á tónleikum á Café Rosenberg næstkomandi laugardagskvöld kl. 22.00. Tónleikarnir eru hluti af átaki frjálsra félagasamtaka í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands um gildi og mikilvægi þróunarsamvinnu. 

 


 


Helmingur sumarlaunanna til UNICEF

11.sep.2012

Hún Valgerður Hirst Baldursdóttir kom til okkar á skrifstofuna í síðustu viku og færði UNICEF myndarlega gjöf.


 


Flóttabörn frá Sýrlandi skimuð fyrir vannæringu

07.sep.2012

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi er í fullum gangi. Unnið er að því að koma í veg fyrir að smitsjúkdómar brjótist út. Læknateymi munu fara um átakasvæðin, skoða börnin og athuga hvort þau sýni einkenni vannæringar.


 


Samstarfsverkefni UNICEF og IKEA tíu ára

06.sep.2012

Í septembermánuði munu UNICEF og IKEA fagna tíu ára löngu samstarfsverkefni sínu sem hefur hjálpað yfir 74 milljónum barna í átt að betri framtíð fyrir þau og fjölskyldur þeirra.


 


Flóttabörn frá Sýrlandi fá hjálp

17.jul.2012

Yfir 110 þúsund manns hafa flúið frá Sýrlandi og yfir til Jórdaníu, Líbanons, Tyrklands og Írak, þar sem þau fá hjálp. Helmingurinn af þeim eru börn og ungmenni. UNICEF í Jórdaníu hefur komið á fót svokölluðum „barnvænum svæðum" á þremur stöðum. Auk þess dreifir UNICEF þessa stundina 3 þúsund hreinlætispökkum fyrir ungabörn en þá hefur alls 9 þúsund pökkum verið dreift.


 


Heimurinn sameinast um að draga úr barnadauða

14.jun.2012

Tíðni barnadauða í heiminum hefur lækkað um meira en 50% á fjörutíu árum. Á alþjóðlegum fundi sem hefst í dag er stefnt að því að draga enn frekar úr barnadauða. Alltof mörg börn láta lítið af einföldum orsökum sem vel mætti koma í veg fyrir.


 


Yfirlýsing frá UNICEF vegna ofbeldis gegn börnum í Sýrlandi

12.jun.2012

UNICEF fordæmir harðlega ofbeldi gegn börnum í Sýrlandi. Ofbeldið er óafsakanlegt, óásættanlegt og því verður að ljúka. Samtökin spyrja hversu mörg börn til viðbótar þurfi að láta lífið svo að eitthvað gerist.


 


Baráttan við algengustu dánarorsakir barna

11.jun.2012

Lífsafkoma barna undir fimm ára aldri og algengustu dánarorsakir þeirra er umfjöllunarefni nýrrar skýrslu UNICEF Lungnabólga og niðurgangspestir: Baráttan við mestu dánarvalda meðal fátækustu barna heims. Þar kemur fram að þriðjung af dauðsföllum barna undir 5 ára má rekja til lungnabólgu og niðurgangspesta.


 


Árangur og erfiði á Sahel-svæðinu

15.maí.2012

Alþjóðleg neyðarsöfnun UNICEF fyrir Sahel-svæðið hefur gengið vonum framar og alls hafa safnast um 1,4 milljarðar króna - yfir 20 milljónir hafa safnast á Íslandi. Nú þegar þurrkatímabilið er gengið í garð er þó búist við að ástandið muni versna. Auk þess hefur hjálparstarf UNICEF þurft að taka mið af flóttafólki frá Malí, en vopnuð átök þar hafa leitt til aukins vanda á svæðinu.


 


Fótboltafélagið Barselóna og UNICEF styrkja samstarf sitt

11.maí.2012

Fótboltafélag Barselóna (FCB) og UNICEF halda samstarfi sínu áfram til að bæta líf milljóna barna í gegnum íþróttir og leiki. Fótboltafélagið mun styrkja UNICEF um 1,5 milljón evra með það að markmiði að ná til barna í 16 þúsund skólum í fjórum löndum, þ.e. Brasilíu, Kína, Gana og Suður-Afríku.


 


„Án hjálpar hefði barnið mitt dáið af völdum vannæringar‟

08.maí.2012

Hadiza, 2 ára, hefur lést mikið að undanförnu. Móðir hennar, Amina, er áhyggjufull. Hún kom með dóttur sína á heilsumiðstöðina í Tibiri í Níger á Sahel-svæðinu þar sem henni var tjáð að dóttir hennar væri alvarlega vannærð. Síðan þá hefur Hadiza fengið aðstoð og hún er farin að þyngjast ... þetta er sagan hennar.


 


Þakkir til Íslendinga frá Búrkína Fasó! Framlögin skipta miklu máli

03.maí.2012

Starfsfólk UNICEF í Búrkína Fasó sendir Íslendingum kærar þakkir! „Ég get fullvissað fólk á Íslandi um að framlögin munu koma að gagni og nýtast vel,“ segir yfirmaður hjá UNICEF í Búrkína Fasó. Yfir 7.000 þúsund Íslendingar hafa styrkt neyðarsöfnun UNICEF.


 


46 tonn af hjálpargögnum UNICEF komin til Máritaníu

24.apr.2012

46 tonn af hjálpargögnum UNICEF bárust í gær til Máritaníu – eitt þeirra átta ríkja á Sahel-svæðinu þar sem þurrkar og uppskerubrestur valda nú miklum vandræðum. 12.000 skammtar af sýklalyfjum voru í sendingunni og 8,7 tonn af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn.
 


 


Framlög til neyðarsöfnunar UNICEF hlutfallslega hvergi hærri en hér!

18.apr.2012

Söfnun UNICEF á Íslandi fyrir neyðaraðgerðum á Sahel-svæðinu er nú komin vel yfir 17 milljónir. Allar landsnefndir UNICEF standa að söfnuninni en viðbrögð Íslendinga hafa verið mjög sterk og framlögin frá Íslandi eru hæst miðað við höfðatölu!


 


Brjótum vítahring vannæringar á Sahel-svæðinu!

06.apr.2012

Á Sahel-svæðinu er vannæring meðal barna komin að hættumörkum, en UNICEF telur að um ein milljón barna þurfi á bráðri hjálp að halda. Framkvæmdastjóri UNICEF, Anthony Lake, heimsótti Sahel-svæðið í vikunni og kallaði eftir aukinni aðstoð til að binda enda á neyðina.


 


Batahorfur vannærðra barna eru afar góðar: Kraftaverkasaga!

04.apr.2012

Batahorfur vannærðra barna eru afar góðar. Drengurinn Minjah frá Sómalíu var einungis þrjú kíló þegar hann komst sjö mánaða inn á slíka stöð. Ótrúlegar myndir af honum fyrir og eftir hafa vakið athygli. Munum að á Sahel-svæðinu getum við tekið þátt í að búa til fleiri svona kraftaverkasögur!


 


Ein milljón barna á Sahel-svæðinu gæti látið lífið: UNICEF hefur söfnun

03.apr.2012

Ein milljón ungra barna á Sahel-svæðinu í Vestur- og Mið-Afríku er í bráðri hættu og gæti látið lífið næstu vikur og mánuði berist ekki hjálp. UNICEF hefur í dag söfnun um allan heim til styrktar þessum börnum. Reynslan sýnir að yfir 95% vannærðra barna á Sahel-svæðinu sem fá meðhöndlun lifa af.


 


Viltu brúnt vatn? Alþjóðlegur dagur vatnsins er í dag

22.mar.2012

Í dag er alþjóðlegur dagur vatnsins! "Minnumst þess í dag hversu lánsöm við erum hér á landi að hafa nóg af hreinu vatni og veitum því athygli að áður en degi hallar munu nær 800 milljónir jarðarbúa hafa neyðst til að drekka skítugt eða sýkt vatn. Minnumst þess um leið að þessu má vel breyta," skrifar Stefán Ingi í Fréttablaðinu í dag.


 


UNICEF fagnar sakfellingu Lubanga

14.mar.2012

UNICEF fagnar sakfellingu Alþjóða glæpadómstólsins í Haag yfir Thomas Lubanga en hann var dæmdur fyrir að nota börn í stríði og vopnuðum átökum í Austur-Kongó.
Lubanga er fyrsti stríðsherrann til að vera dæmdur af alþjóðadómstólum fyrir að nota börn sem skipulögð vopn í stríði.


 


Yfirvofandi hungursneyð á Sahel svæðinu

13.mar.2012

Þegar tveggja ára stúlkan Zelika kom á spítala í Quallam í Níger fyrir þremur vikum voru lífslíkur hennar mjög lágar. Zelika þjáðist af alvarlegri vannæringu en með viðeigandi meðferð tókst að bjarga lífi hennar. UNICEF áætlar að yfir ein milljón barna muni fá alvarlega vannæringu á Sahel-svæðinu á þessu ári.


 


Lenny Kravitz styður við vatnsverkefni UNICEF

07.mar.2012

Lenny Kravitz, Grammy-verðlaunahafi, söngvari og plötuframleiðandi, mun nýta rödd sína og hæfileika í þágu UNICEF á næstu vikum. Hann ætlar að styðja við alheimsátak UNICEF um að tryggja og bæta líf milljóna barna og fjölskyldna þeirra með því að bæta aðgengi að drykkjarhæfu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu.


 


Þúsaldarmarkmið um aðgengi að hreinu drykkjarvatni hefur náðst!

06.mar.2012

UNICEF og WHO kynna í dag stöðuskýrslu sem sýnir að mikilvæg undirgrein Þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna hefur náðst! Frá árinu 1990 hafa meira en tveir milljarðar manna fengið aðgang að hreinu drykkjarvatni. „Sýnir að sannarlega er hægt að ná árangri.“


 


Hundruð milljóna barna í þéttbýli njóta engrar grunnþjónustu

28.feb.2012

Árleg skýrsla UNICEF um stöðu barna í heiminum kemur út í dag. Kastljósinu í ár er beint að börnum í þéttbýli en talið er að innan fárra ára muni meirihluti barna í heiminum alast upp í þéttbýli. Þar kemur enn fremur fram að barnadauði er mestur í Sómalíu en minnstur á Íslandi, San Marínó og í Liechtenstein.


 


Yfirvofandi neyð á Sahel-svæðinu

14.feb.2012

Sár neyð er yfirvofandi á hinu svokallaða Sahel-svæði í vesturhluta Afríku. Ástandið í heimshlutanum er ógn við líf og heilsu yfir einnar milljónar barna sem UNICEF áætlar að muni þjást vegna alvarlegrar vannæringar á árinu 2012. Einnig er hætt við að þau fari á mis við rétt sinn til verndar og menntunar.


 


Yfirlýsing UNICEF um átökin í Sýrlandi

07.feb.2012

Hátt í ellefu mánuðir af ofbeldi í Sýrlandi hafa leitt til þess að hundruðir barna liggja nú slösuð eða jafnvel látin. Frásagnir herma að börn séu handtekin, pyntuð og misnotuð kynferðislega í haldi.


 


Yfirvofandi fæðuskortur í Níger

06.feb.2012

Aukinn fæðuskortur í Níger getur leitt til vannæringar þúsunda barna um allt land ef ekkert verður að gert. Ef ekki er til nóg af fæðu munu börn, sérstaklega þau sem eru undir fimm ára aldri, eiga á hættu á að látast af völdum vannæringar eða öðrum tengdum kvillum. Við segjum sögu Zöru og Oumou í fréttinni.


 


Beðið eftir fullgildinu alþjóðlegra sáttmála á Íslandi

01.feb.2012

Ný skýrsla UNICEF um viðbrögð stjórnvalda við mansali barna var kynnt sameiginlega á öllum Norðurlöndunum í dag. Í skýrslunni, Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses, kemur fram að aðgerðir gegn mansali geti verið of einangraðar sem hefur leitt til þess að mál sumra barna falli ekki inn í kerfið.


 


UNICEF biður um fjármagn til þess að veita börnum neyðarhjálp

27.jan.2012

Í dag kallar UNICEF eftir 1,28 milljörðum Bandríkjadala, 157 milljörðum króna, til að fjármagna neyðarhjálp í ár en í  því felst að koma börnum í yfir 25 löndum til hjálpar. UNICEF birti í dag skýrslu sína, Humanitarian Action Report, en þar er þörfin í ólíkum löndum greind og farið yfir hvaða leiðir UNICEF telur færar til hjálpar.


 


Tímamót í baráttunni við lömunarveiki á Indlandi

27.jan.2012

Merkileg tímamót hafa orðið í baráttunni við lömunarveiki á Indlandi. Rúmt ár er síðan síðasta tilfellið í landinu kom upp. Alistair Gretarsson, upplýsingafulltrúi hjá UNICEF á Indlandi, er að vonum glaður með að lömunarveikilaust Indland sé í augsýn. (Gríðarlega mikilvægt sé að ná að útrýma sjúkdómnum um allan heim.)


 


Sólveig Sveinbjörnsdóttir: Er hálfgerð flökkukind í mér

23.jan.2012

Sólveig Sveinbjörnsdóttir, félagsráðgjafi, hefur unnið hjá UNICEF á ýmsum stöðum í heiminum. Seinast var hún hjá UNICEF í Eþíópíu og sagði frá reynslu sinni í skemmtilegu viðtali við Samfélagið í nærmynd á Rás 1. Sólveig útskýrði meðal annars starf sitt við barnavernd fyrir eþíópísk börn.


 


Mikið fjallað um jarðskjálftann á Haítí: Margt áunnist á tveimur árum

13.jan.2012

Tveimur árum eftir að jarðskjálftinn á Haítí lagði stóran hluta landsins í rúst er margvíslegar góðar fréttir að finna frá landinu. Fjallað var um stöðuna á Haítí og starf UNICEF í sjö-fréttatíma RÚV, í Fréttablaðinu, Speglinum, á Vísi og víðar.


 


Tvö ár frá skjálfta: Ástandið á Haítí smám saman breyst til batnaðar

12.jan.2012

Tveimur árum eftir jarðskjálftann mikla á Haítí 12. janúar 2010 hefur staða barna í landinu smám saman breyst til batnaðar. Ríkið er enn veikburða, margvíslegar áskoranir eru framundan og fátækt í landinu mikil en þýðingarmikla sigra er víða að finna. Í dag kynnir UNICEF skýrslu um stöðuna á Haítí.


 


Söfnun vegna neyðarhjálpar í Austur-Afríku enn í gangi

12.nov.2011

Þrátt fyrir að mikilvægur árangur hafi náðst á neyðarsvæðunum í austanverðri Afríku eru tugir þúsunda barna enn í bráðri lífshættu. Vannæring er enn langt yfir neyðarmörkum og hætta er á að líshættulegir sjúkdómar breiðist út. Íslendingar geta enn lagt sitt af mörkum til neyðaraðgerða UNICEF með því að hringja í sérstök söfnunarsímanúmer.
 


 


Ótal barnslífum hefur verið bjargað í Austur-Afríku

08.nov.2011

Bráð hætta steðjar enn að yfir 13 milljónum manna í austurhluta Afríku. Helmingur þeirra er börn. Í Fréttablaðinu um helgina skrifaði Svavar Hávarðsson ítarlega grein um neyðarástandið á þurrkasvæðinu og viðbrögð UNICEF. Í greininni eru aðgerðir UNICEF meðal annars sýndar á grafískan og skemmtilegan hátt.


 


Prinsar og prinsessur vekja athygli á neyðarástandi

02.nov.2011

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja heimsóttu birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn í dag ásamt Friðriki krónprinsi Danmerkur og Mary krónprinsessu. Markmiðið var að draga athygli að ástandinu í Austur-Afríku. „UNICEF leiðir starfið og þau eru að vinna frábært verk,“ sagði Vilhjálmur.


 


Ótal barnslífum verið bjargað: Neyðarástandinu þó langt í frá lokið

21.okt.2011

100.000 börn meðhöndluð hafa verið meðhöndluð gegn vannæringu á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku og yfir ein milljón barna verið bólusett gegn mislingum. Stöðuskýrsla frá UNICEF sýnir að árangur hefur náðst en að neyðarástandinu er þó langt í frá lokið.


 


Alþjóðlegi handþvottardagurinn á morgun

14.okt.2011

Alþjóðlegi handþvottardagurinn verður haldinn hátíðlegur í fjórða skiptið í á morgun. Markmið dagsins er að vekja athygli á því að handþvottur með sápu og vatni er ein albesta og ódýrasta forvörnin sem völ er á gegn fjölmörgum sjúkdómum.


 


UNICEF fordæmir ofbeldi gegn jemenskum börnum

06.okt.2011

Að minnsta kosti 94 börn hafa látið lífið í átökum í Jemen síðan þau brutust út fyrr á þessu ári. Átökin bæta gráu ofaná svart fyrr börn í Jemen þar sem tíðni vannæringar barna var fyrir ein sú hæsta í heiminum. UNICEF harmar að ofbeldi skuli bitna á börnum.


 


Skólaárið hafið á Haítí

05.okt.2011

Skólaárið hófst formlega á Haítí síðstliðinn mánudag, 3. október. Eins og mörgum er enn í fersku minni skók gríðarsterkur jarðskjálfti landið fyrir rúmu einu og hálfu ári með þeim afleiðingum að nánast allt daglegt líf fór úr skorðum, þar með talið skólastarf.


 


Ástandið versnar í Pakistan: Íslendingar geta lagt hjálparstarfi lið

30.sep.2011

Börn á stórum svæðum í Pakistan eru að upplifa hörmungar af völdum flóða annað árið í röð. Helmingur þeirra sem flóðin bitna á eru börn sem eru jafnframt sá hópur sem er mest berskjalda í náttúruhamförum. Íslendingar geta lagt hjálparstarfi UNICEF í Pakistan lið með fjárframlögum á sérstakan söfnunarreikning: 515-14-403160 (kt. 481203-2950).

 


 


Íslendingur í Dadaab: „Mun aldrei gleyma hlutskipti flóttamanna“

29.sep.2011

Íslendingurinn Freyja Oddsdóttir heimsótti nýverið stærstu flóttamannabúðir heims: Dadaab í Keníu. Þangað hafa þúsundir sómalskra fjölskyldna streymt á flótta undan hungri og átökum. Á næstu dögum mun birtast grein eftir Freyju í Fréttablaðinu um aðstæður í Dadaab en hér deilir hún með okkur myndum og stuttri hugleiðingu.

 


 


Ný lög samþykkt gegn afskurði kynfæra stúlkna í Gíneu-Bissá

28.sep.2011

Stjórnvöld í Gíneu-Bissá gafa samþykkt algjört bann við afskurði kynfæra stúlkna í landinu. Nýju löginn eru mikið fagnaðarefni en þau koma í kjölfarið á umræðu sem staðið hefur yfir þarlendis undanfarin 16 ár. Stærsta áskorunin er þó eftir: Að tryggja að lögunum sé í raun fylgt.


 


Myndir frá flóðasvæðunum í Pakistan: Umfang flóðanna gríðarlegt

21.sep.2011

Helmingur þeirra sem flóðin miklu í Pakistan bitna á eru börn. Mörg þeirra eru enn að jafna sig eftir flóðin sem gengu yfir landið í fyrra og voru þau verstu í sögu Pakistan. Hjá UNICEF í Pakistan starfar Ólöf Magnúsdóttir, sem áður vann hjá UNICEF á Íslandi. Ólöf hefur verið upp fyrir haus síðastliðna daga við að bregðast við því sem nú hefur átt sér stað.

 


 


Barnadauði hæstur í Sómalíu í fyrra: Á eftir að hækka enn frekar í ár

20.sep.2011

Langvarandi átök og síendurteknir þurrkar undanfarna áratugi eru meðal ástæðna þess að í fyrra var dánartíðni barna (yngri en fimm ára) hvergi hærri en í Sómalíu. Er þetta meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF og WHO. UNICEF óttast að tíðni barnadauða í landinu muni aukast verulega á þessu ári.


 


Verulega dregið úr barnadauða á síðustu tveimur áratugum

15.sep.2011

Samkvæmt nýju mati UNICEF og WHO hefur þeim börnum yngri en fimm ára sem deyja árlega fækkað úr 12 milljónum í 7,6 milljónir á tímabilinu 1990 til 2010. Þetta þýðir að á síðasta ári dóu daglega 12.000 færri börn undir fimm ára aldri en árið 1990.


 


Ný flóð í Pakistan: Börn sem urðu illa úti í flóðum í fyrra í mestri hættu

12.sep.2011

Allt að 2,5 milljónir barna hafa orðið fyrir beinum áhrifum af miklum flóðum í suðurhluta Pakistan. Mörg þessara barna eru enn að jafna sig eftir flóð sem gengu yfir landið í fyrra og voru þau verstu í sögu Pakistan. UNICEF segir brýna þörf á aukinni aðstoð áður en ástandið versnar frekar.


 


Fyrst og fremst hungursneyð barna: Meðferðarhorfur þó afar góðar

09.sep.2011

Hungursneyð hefur nú verið lýst yfir í sex héruðum í suðurhluta Sómalíu og búist er við að fleiri héruð muni fylgja í kjölfarið. UNICEF hefur þungar áhyggjur af ástandinu – enda er þetta fyrst og fremst hungursneyð barna.


 


Innilegar þakkir til Íslendinga frá starfsfólki UNICEF á vettvangi

17.ágúst.2011

Tekið er eftir því hjá starfsmönnum UNICEF á vettvangi hve vel Íslendingar hafa brugðist við neyðarákallinu vegna ástandsins í Austur-Afríku. Starfsfólk UNICEF í Dadaab í Keníu vill meðal annars koma á framfæri innilegum þökkum fyrir stuðninginn.


 


531 tonn af hjálpargögnum til Austur-Afríku það sem af er ágústmánuði

12.ágúst.2011

Fyrstu 12 dagana í ágúst hafa 26 birgðaflutningavélar flogið með 531 tonn af hjálpargögnum frá UNICEF til þurrkasvæðanna á austurodda Afríku. Megináhersla hefur verið lögð á að senda næringarbætt mauk fyrir vannærð börn ásamt næringarbættu maís- og sojamjöli sem gera má úr graut.


 


UNICEF eykur umfang aðstoðar sinnar í Dadaab og nágrenni

05.ágúst.2011

UNICEF eykur umfang neyðaraðstoðar sinnar í Dadaab búðunum og nærliggjandi byggðum vegna stöðugs straums flóttafólks frá Sómalíu. Nærri helmingur barna sem flýja Suður-Sómalíu eru vannærð. UNICEF starfar samþætt á vettvangi á sviðum næringar og heilsugæslu, vatns og hreinlætis og barnaverndar.


 


UNICEF kallar eftir sterkari viðbrögðum alþjóðasamfélagsins vegna neyðarinnar á Horni Afríku

03.ágúst.2011

Í ljósi versnandi neyðarástands á Horni Afríku vara Sameinuðu þjóðirnar við því að á næstu tveimur mánuðum gæti ástandið um gjörvalla Suður-Sómalíu orðið að hungursneyð. Ótal mannslíf eru í húfi; engu að síður eru viðbrögð alþjóðasamfélagsins ennþá hæg.
 


 


„Það eru bókstaflega mörgþúsund börn hérna sem þarfnast hjálpar“

29.jul.2011

„Þetta er erfitt.“ Þannig lýsir starfsmaður UNICEF sem staddur er í Dadaab-flóttamannabúðunum í Keníu upplifun sinni. Frásögn hans af aðstæðum í búðunum er nöturleg en hann segir starfsfólk UNICEF engu að síður halda í jákvæðnina með því að einbeita sér að því sem gera þarf til að hjálpa eins mörgum börnum og mögulegt er.


 


Hjálpargögn UNICEF komast til skila í Sómalíu, Keníu og Eþíópíu

27.jul.2011

UNICEF hefur dreift 1300 tonnum af hjálpargögnum í suðurhluta Sómalíu það sem af er mánuðinum. Þar á meðal eru 653 tonn af svokallaðri UNIMIX-blöndu sem inniheldur meðal annars maís, mjólkurduft, sojamjöl, vítamín og steinefni. Úr blöndunni er búinn til næringarríkur grautur fyrir börn.


 


Hátt í 7000 Íslendingar hafa stutt neyðaraðgerðir UNICEF

27.jul.2011

Hátt í 7000 Íslendingar hafa stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi. Svæðisstjóri UNICEF á þurrkasvæðinu er þakklátur Íslendingum. Fyrir framlagið er hægt að útvega sem samsvarar 300.000 skömmtum af fæðu fyrir vannærð börn. Hvert framlag skiptir máli. Takk fyrir stuðninginn!


 


Sameinuðu þjóðirnar lýsa yfir hungursneyð í Sómalíu

20.jul.2011

Hvergi í heiminum er vannæring nú meiri en í Sómalíu. Í morgun lýstu Sameinuðu þjóðirnar formlega yfir hungursneyð í tveimur héruðum landsins: Í Bakool og í Neðri-Shabelle. Neyðin bitnar mest á börnum. Þriðja hvert barn í Sómalíu er  vannært.

 


 


76 tonn af lífsnauðsynlegum hjálpargögnum á leiðinni til Keníu

19.jul.2011

Í morgun tók flutningavél frá birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn á loft. Ferðinni er heitið til Keníu og eru 76 tonn af hjálpargögnum í sendingunni. Búist er við vélin lendi í höfuðborginni Nairobi skömmu eftir miðnætti að staðartíma.


 


Nýjar myndir frá þurrkasvæðunum - myndir frá norðvesturhluta Keníu

18.jul.2011

Úti á landi, í litlum þorpum og á meðal hirðingja í Keníu eru afleiðingar þurrkanna miklu hvað alvarlegastar. Um helgina fór framkvæmdastjóri UNICEF á heimsvísu til Turkana-héraðs þar sem vannæring hefur stóraukist: Hún er nú komin upp í 37%. Við vorum að fá sendar sláandi ljósmyndir úr ferðinni.


 


Ástandið í Austur-Afríku versnar enn: UNICEF eykur við neyðaraðstoðina

15.jul.2011

Enn versnar ástandið í Austur-Afríku eftir mestu þurrka í yfir hálfa öld. UNICEF hefur þungar áhyggjur af stöðunni og hefur aukið enn við mannúðaraðgerðir sínar á svæðinu. Hálf milljón barna er lífshættulega vannærð og í þörf fyrir tafarlausa aðstoð. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi hefur gengið vel.


 


Sögulegur dagur fyrir alla Afríku: Nýtt ríki lítur dagsins ljós

08.jul.2011

Á morgun mun stærsta ríki Afríku skiptast upp og nýtt ríki líta formlega dagsins ljós: Suður-Súdan. Hið nýja ríkið verður eitt það fátækasta í heimi og jafnframt sá staður þar sem einna áhættusamast verður fyrir börn að fæðast. UNICEF sinnir afar umfangsmiklu hjálparstarfi í Suður-Súdan.


 


Tvær milljónir barna yngri en 5 ára þurfa tafarlausa hjálp í Austur-Afríku

08.jul.2011

UNICEF hefur lýst yfir neyðarástandi í Austur-Afríku, nánar tiltekið í Sómalíu og hluta af Eþíópíu og norðurhluta Keníu. Samtökin telja að ástandið ógni lífi og heilsu um tíu milljóna manna, þar af eru um tvær milljónir barna undir fimm ára aldri. UNICEF á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun til styrktar þessum börnum.


 


UNICEF náði til nærri 60% barna í heimi: Ný birgðaskýrsla er komin út

05.jul.2011

Árið 2010 sendi UNICEF vel yfir 2 milljarða skammta af bóluefni á vettvang – og náði þar með til 58% barna í heimi. Þetta kemur fram í nýrri birgðaskýrslu UNICEF fyrir 2010. Þar kemur einnig fram að nærri 400 milljónum taflna með ormalyfi var dreift. Þetta er einungis hægt með góðri skipulagningu!


 


Vaxandi neyð í Austur-Afríku: Mikilvægt að fylgjast vel með

30.jun.2011

UNICEF hefur miklar áhyggjur af matarskorti og flóttamannastraumi í Austur-Afríku. Ástandið má rekja til skelfilegrar blöndu af þurrkum, langvarandi og stigvaxandi átökum og hækkandi matvælaverði. Samtökin telja að ástandið ógni lífi og heilsu milljóna barna og kvenna og hvetur stjórnvöld og styrktaraðila til að bregðast við með hraði.


 


UNICEF aðstoðar konur og börn með HIV á Haítí

29.jun.2011

Lífið er erfitt fyrir hina 16 ára gömlu Clodine. Hún er barnshafandi, gengin sex mánuði, og smituð af HIV. Hún býr ásamt gamalli frænku sinni í tjaldi með moldargólfi í tjaldbúðum fyrir heimilislaust fólk í höfuðborg Haítí, Port-au-Prince.


 


Dagur afríska barnsins tileinkaður götubörnum

20.jun.2011

Þúsundir barna í Afríku sæta ofbeldi og misnotkun á hverjum einasta degi. Ástandið er sérstaklega áþreifanleg fyrir börn sem búa og starfa á götunni. Í tilefni af degi afríska barnsins þann 16. júní hvatti UNCEF stjórnvöld til að tryggja götubörnum aukna vernd.


 


Alþjóðlegur dagur gegn barnavinnu: Saga frá Bólivíu

15.jun.2011

Tólfta júní sl. var Alþjóðlegur dagur gegn barnavinnu. Tilgangur dagsins er að draga athyglina að skelfilegum veruleika 115 milljóna barna, sem starfa við aðstæður sem ógna lífi þeirra og þroska. Hér er sögð saga - ein af alltof mörgum - um börn sem vinna erfiðisvinnu.


 


UNICEF og FC Barcelona halda samstarfinu áfram

16.maí.2011

UNICEF og FC Barcelona hafa ákveðið að halda samstarfi sínu áfram eftir að núverandi samningi lýkur. Merki UNICEF verður áfram á treyjum Barcelona á næsta keppnistímabili. Þetta var tilkynnt í sameiginlegri yfirlýsingu frá UNICEF og FC Barcelona nú í morgun.


 


Yfir 2 milljörðum skammta af bóluefni dreift til barna um allan heim

04.maí.2011

UNICEF starfar í nærri 160 löndum og árið 2010 var í ótal horn að líta hjá samtökunum. Alls var rúmlega tveimur milljörðum skammta af bóluefni dreift á árinu og það í nærri 90 löndum. Þar af var einn milljarður barna bólusettur gegn taugaveiki.


 


UNICEF bregst við mikilli neyð í Jemen - með hjálp ótal Íslendinga

29.apr.2011

Neyðarástand ríkir í Jemen og UNICEF á Íslandi hefur ákveðið að styrkja starf UNICEF í Jemen um rúmar 11 milljónir króna. Héðinn Halldórsson sem unnið hefur sem upplýsingafulltrúi UNICEF í Jemen segir mikilvægt að styðja við hjálparstarf á svæðinu.


 


Haldið upp á malaríudaginn - Íslendingar geta gefið moskítónet!

26.apr.2011

Malaría er banvænn sjúkdómur sem smitast með moskítóflugum og herjar á milljónir manna í yfir 100 löndum, ekki síst börn. Þessi dauðsföll eru óásættanleg – og þau má koma í veg fyrir. Með sannri gjöf frá UNICEF býðst almenningi nú að kaupa moskítónet sem bjarga mannslífum.


 


Hjálpargögn komin til Líbíu - líflína opnast inn til Misrata

08.apr.2011

Hjálpargögn með mánaðarskammt af mat fyrir 60.000 manns og lyf og sjúkrabirgðir fyrir 50.000 eru komnar til Misrata í Líbíu. Birgðirnar eru líflína til allra þeirra barna sem föst eru á átakasvæðinu miðju. Á landamærunum hefur fjöldi barna og fjölskyldna aukist á meðal flóttafólks.


 


Leikarinn Liam Neeson tekur við sem velgjörðarsendiherra UNICEF

30.mar.2011

Leikarinn Liam Neeson hefur tekið við sem velgjörðarsendiherra UNICEF. „Ein af ástæðunum fyrir því að ég er stoltur af því að tengjast UNICEF er sú að UNICEF vinnur að því að minnka fjölda þeirra barna sem látast á hverjum degi af orsökum sem auðveldlega mætti koma í veg fyrir,“ sagði hann í gær. 

 


 


Ástandið á Fílabeinsströndinni versnar hratt

28.mar.2011

Staðan á Fílabeinsströndinni í vesturhluta Afríku hefur versnað hratt síðastliðna daga og vikur. Óttast er að út gæti brotist stríð að nýju. Forsetakosningar fóru fram í landinu 28. nóvember síðastliðinn en forsetinn, Laurent Gbagbo, hefur neitað að víkja. UNICEF fylgist vandlega með stöðunni.


 


Söfnun vegna neyðaraðstoðar við börn í Líbíu

25.mar.2011

Óróleiki og átök í Líbíu ógna lífi og velferð mörg þúsund barna í landinu. Yfir þrjú hundruð þúsund manns hafa flúið yfir til nágrannaríkjanna Egyptalands og Túnis. Sem fyrr eru börn sérstaklega berskjalda þegar neyðarástand ríkir. UNICEF hefur hafið söfnun til styrktar börnum á svæðinu.


 


Íslendingar geta styrkt neyðaraðstoð UNICEF í Japan

18.mar.2011

Þörf á neyðarhjálp í Japan er mikil nú þegar vika er liðin frá því að gríðarlegar náttúruhamfarir gengu yfir norðausturhluta landsins með skelfilegum afleiðingum. Fjöldi barna og fjölskyldur þeirra hefur hvorki aðgang að hreinu drykkjarvatni né viðunandi hreinlætisaðstöðu.


 


Flóðbylgjan eirði fátækum Kyrrahafsríkjum

14.mar.2011

Flóðbylgjan sem fylgdi í kjölfar jarðskjálftans út fyrir Japansströndum á föstudaginn olli gríðarlegu tjóni í Japan sem enn sér ekki fyrir endann á. Betur fór þó en á horfðist í tilviki fátækra ríkja við og á Kyrrahafinu.


 


UNICEF í viðbragðsstöðu vegna flóðbylgjunnar á Kyrrahafinu

11.mar.2011

UNICEF er í mikilli viðbragðsstöðu vegna hinnar ógnarstóru flóðbylgju sem ferðast nú um Kyrrahafið í kjölfar gríðaröflugs jarðskjálfta við Japansstrendur í morgun. Hjálparstarfsfólk á vegum samtakanna bíður nú átekta eftir því að áhrif bylgjunnar komi betur í ljós.


 


Vaxandi neyð í Jemen

10.mar.2011

Íslenski fjölmiðlamaðurinn Héðinn Halldórsson starfar sem upplýsingafulltruí UNICEF í Jemen. Hann segir samtökin nú undirbúa sig fyrir neyðaraðstoð samhliða auknum óróa í landinu auk þess sem þau sinna fjölþættum verkefnum í þágu jemenskra barna.


 


Kvennadagur: Mikilvægt að unglingsstúlkur hljóti menntun

08.mar.2011

Í dag er alþjóðlegum degi kvenna fagnað í hundraðasta skiptið. UNICEF vill nota tækifærið og vekja athygli að þeim 515 milljón unglingsstúlkum í þróunarlöndunum sem geta hjálpað samfélögum sínum að blómstra fái þær menntun og tækifæri til að þroska hælfileika sína.


 


1,7 milljón börn bólusett gegn mislingum þrátt fyrir ólgu og átök

08.mar.2011

Dagana 7.-11. mars standa UNICEF og WHO fyrir umfangsmiklu bólusetningarátaki í Abidjan, stærstu borg Fílabeinsstrandarinnar. Áætlað er að rúmlega 1,7 milljón börn verði bólusett gegn mislingum.


 


Þörf á 1,4 milljörðum USD til neyðaraðstoðar árið 2011

07.mar.2011

Í árlegri skýrslu UNICEF kemur fram að samtökin áætla að þurfa um 1,4 milljarða bandaríkjadala til að koma börnum og konum til hjálpar á 32 svæðum þar sem samtökin telja að þörfin á neyðaraðstoð sé sérstaklega aðkallandi.


 


Hátt í 100.000 hafa flúið Líbíu

02.mar.2011

Hátt í 100 þúsund manns hafa flúið ofbeldi og átök í Líbíu yfir til nágrannaríkjanna. Um 40 þúsund hafa flúið yfir til Túnis og 55 þúsund til Egyptalands. Þessir fyrstu flóttamenn eru aðallega karlmenn, sem snúið hafa aftur til síns heima eða eru innflytjendur frá öðrum löndum.


 


Fjárfesting í ungmennum getur rofið múra fátæktar

25.feb.2011

Mikilvægt er að auka fjárveitingar til málaflokka sem tengjast ungmennum á aldrinum 10-19 ára. Þannig er mögulegt að rjúfa múra fátæktar og ójafnræðis. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, SOWC 2011.


 


Fjölskyldur byggja upp líf sitt eftir flóðin á Sri Lanka

17.feb.2011

Fjölskyldur hafa nú byrjað að snúa aftur heim eftir flóðin á Sri Lanka fyrr á árinu. 96% skóla í þeim samfélögum sem urðu illa úti í flóðunum hafa verið teknir í notkun á ný en mörg börn hafa þó misst allar skólabækur sínar og enn er þörf á að gera við skólabyggingar.


 


Sex mánuðir frá flóðunum í Pakistan

28.jan.2011

Sex mánuðir eru síðan einar mestu Monsún rigningar í tugi ára ollu gífurlegum flóðum og eyðileggingu í Pakistan. Nú þegar UNICEF minnist þessarra hamfara standa samtökin frammi fyrir annarri þraut; vannæringu barna sem búa á flóðasvæðunum.


 


Málþing um börn sem heltast úr lestinni í efnameiri löndum

17.jan.2011

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stendur að málþingi um skýrsluna "The children left behind" eða „Börn skilin útundan“ í samstarfi við Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þriðjudaginn 18. janúar kl. 12-13 í Odda stofu 201.


 


Hjálp berst til flóðasvæðanna á Sri Lanka

14.jan.2011

Önnur sending af neyðargögnum kemur til flóðasvæðanna í austurhluta Sri Lanka í dag. Um er að ræða 4.961 hreinlætispakka (sem dugar fjölskyldu í allt að fimm mánuði), 10 þúsund plastfötur, 15 þúsund svefnmottur og 150 potta til að elda.


 


Ári eftir jarðskjálftann er enn þörf á grundvallarþjónustu fyrir börn á Haítí

07.jan.2011

Einu ári eftir að jarðskjálfinn mikli reið yfir Haítí þann 12. janúar þjást allt að 4 milljónir barna vegna lélegs aðgengis að vatni, hreinlæti, heilsugæslu og menntun. UNICEF minnist tímamótanna og fer yfir árangur hjálparstarfsins og þær miklu áskoranir sem framundan eru í skýrslu sinni „Children in Haiti: One Year After - The long road from relief to recovery”.


 


Tólf jemensk börn hafa látið lífið af völdum sprengna á þessu ári

22.des.2010

Að minnsta kosti 12 börn létu lífið vegna sprengna í Jemen á þessu ári og hátt í 20 börn slösuðust alvarlega. Fyrr í mánuðinum slasaðist unglingspiltur þegar hann átti við jarðsprengju sem hann fann nálægt heimili sínu í Sa'ada héraði. Hann missti fjóra fingur
þegar sprengjan sprakk í höndunum á honum.


 


Aukin hætta á dreifingu sjúkdóma í kjölfar fellibylsins Tómasar á Haítí

09.nov.2010

Fellibylurinn Tómas gekk yfir Haítí í síðustu viku. Íbúar þessarar litlu eyja í karabíska hafinu vöknuðu á sunnudaginn og þurftu að meta skaðann vegna fellibylsins Tómasar, sem kom hræðilega nálægt því að bæta aukinni eymd á þjóð, sem er nú þegar að spóla sig út úr vandræðum nýliðins kólerufaraldurs og jarðsjálftans þann 12.janúar 2010.


 


Aðgengi að HIV þjónustu eykst á alþjóðavísu

29.sep.2010

Aðgengi að HIV þjónustu hefur aukist í lág- og meðaltekjulöndum, samkvæmt nýrri skýrslu sem kynnt var í gær. Skýrslan, Towards Universal Access, er gefin út af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), UNICEF og UNAIDS.


 


Fimm milljónir úr neyðarsjóði til hjálparstarfs í Pakistan

22.sep.2010

Í ljósi gríðarlegs umfangs neyðarinnar í Pakistan hefur UNICEF á Íslandi ákveðið að verja fimm milljónum króna úr neyðarsjóði sínum til UNICEF í Pakistan. Bætist sú upphæð við þær sex milljónir sem safnast hafa frá íslenskum almenningi á undandförnum vikum. Yfir tíu milljónir barna þurfa á aðstoð að halda. 


 


Barnadauði lækkar um þriðjung frá árinu 1990

17.sep.2010

Nýjustu áætlanir Sameinuðu þjóðanna á barnadauða benda til að færri börn deyi fyrir fimm ára aldur í dag en árið 1990.Samkvæmt þessum áætlunum hefur dregið úr barnadauða (undir 5 ára) um allan heim frá 12,4 milljónum árið 1990 til 8,1 milljón á árinu 2009.


 


Menntun og leikur mikilvægur börnum á neyðarsvæðum í Pakistan

14.sep.2010

Á undanförnum vikum hafa gríðarleg flóð sett líf um 20,5 milljóna Pakistana úr skorðum. Þar á meðal eru milljónir berskjalda barna. UNICEF hefur gripið til aðgerða til að tryggja þessum börnum öruggt og uppbyggjandi umhverfi.


 


Enn ríkir mikil neyð í Pakistan

08.sep.2010

Á hverjum degi flæðir vatn yfir ný svæði í Pakistan. Talið er að fjöldi þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á flóðunum sé nú orðinn um 20,5 milljónir. Meðal þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna eru um þrjár milljónir barna undir fimm ára aldri.


 


Ný rannsókn sýnir að fjármagn nýtist betur ef lögð er áhersla á þá fátækustu

07.sep.2010

Alþjóðsamfélagið getur komið milljónum til hjálpar með því að fjárfesta fyrst og fremst í þeim börnum og samfélögum sem minnst mega sín, samkvæmt nýrri rannsókn UNICEF sem kemur út í dag.


 


Fjórar milljónir pakistanskra barna í bráðri hættu

26.ágúst.2010

Samkvæmt nýjustu áætlunum stjórnvalda í Pakistan hafa um 20 milljónir íbúa orðið fyrir áföllum í kjölfar flóðanna. Af þeim eru yfir átta milljónir barna undir 18 ára aldri. Fjórar milljónir þeirra eru í mikilli hættu á að smitast af lífshættulegum sjúkdómum.


 


Tekjur af lagi Bjarkar til hjálparstarfs UNICEF í Pakistan

24.ágúst.2010

Aðdáendur Bjarkar Guðmundsdóttur geta nú hlaðið niður laginu „The Comet Song“ á iTunes og stutt um leið hjálparstarf UNICEF í Pakistan. Allar tekjur af laginu renna til hjálparstarfsins. Björk hefur áður lagt UNICEF lið með svipuðum hætti og er dyggur stuðningsaðili samtakanna.


 


Innsýn í ástandið á flóðasvæðunum í Pakistan

23.ágúst.2010

Yfirmaður UNICEF í Suður-Asíu, Daniel Tool,  heimsótti flóðasvæðin í Pakistan í síðustu viku. Hann lýsir því sem fyrir augu bar í persónulegri dagbók sinni. Lýsingarnar veita innsýn inn í skelfilegt ástand sem blasir við milljónum barna og fjölskyldum þeirra.


 


Yfirlýsing vegna neyðarástandsins í Pakistan

20.ágúst.2010

Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, hefur gefið út yfirlýsingu vegna neyðarástandsins í Pakistan. Í yfirlýsingunni brýnir Lake þörfina fyrir stóraukin framlög til hjálparstarfs í þágu pakistanskra barna ef koma á í veg fyrir að „flóðin sem hafa lagt heimili þeirra í rúst leggi ekki einnig framtíð þeirra í rúst“.


 


Ein milljón hefur safnast fyrir hjálparstarf í Pakistan

19.ágúst.2010

UNICEF á Íslandi hóf í gær söfnun fyrir hjálparstarf UNICEF á flóðasvæðunum í Pakistan. Ljóst er að fjölmargir Íslendingar ætla að svara kallinu en á fyrsta sólarhringnum hefur safnast yfir ein milljón króna. UNICEF metur mikils hvert framlag og hvetur sem flesta að taka þátt í söfnuninni.


 


Hjálpargögn berast til Pakistan

16.ágúst.2010

Hjálpargögn frá UNICEF berast nú í auknum mæli til barna og fjölskyldna þeirra á flóðasvæðunum í Pakistan í þessum verstu náttúruhamförum sem dunið hafa á landinu í manna minnum. Hægt er að leggja neyðaraðgerðum UNICEF í Pakistan lið með því að leggja inn á söfnunarreikning UNICEF á Íslandi, 515-26-102040, kennitala 481203-2950.


 


UNICEF sendir neyðargögn vegna flóðanna í Pakistan og Afganistan

03.ágúst.2010

UNICEF sendir nú hjálpargögn til þeirra milljóna manna sem hafa orðið illa úti í flóðunum í nokkrum héruðum í norðurhluta Pakistans og Afganistan. Flóðin eru þau verstu á svæðinu í yfir 80 ár og hafa nú þegar 3,2 milljónir manna, þ.á m. 1,4 milljónir barna, orðið fyrir áhrifum af þeim.


 


Alþjóðleg brjóstagjafavika hefst

30.jul.2010

UNICEF fagnar nú upphafi alþjóðlegrar brjóstagjafaviku. Sérstök áhersla er lögð á átakið í Sómalíu þar sem eitt af hverjum fimm börnum deyr fyrir fimm ára aldur, en brjóstagjöf getur dregið úr barnadauða um allt að 20 prósent og fækkað sjúkdómum.


 


Börn og ungmenni til umræðu á HIV/alnæmis-ráðstefnunni í Vín

26.jul.2010

Alþjóðlega ráðstefnan um HIV/alnæmi, AIDS 2010, lagði áherslu á mikilvægi þess að koma í veg fyrir smit frá móður til barns. Sérfræðingar UNICEF í HIV/alnæmi komu saman frá yfir 35 löndum á ráðstefnunni sem nú er að ljúka.


 


Ungmenni Austur-Evrópu og Mið-Asíu upplifa skömm og útskúfun

19.jul.2010

 alt=HIV veirunni er líkt við neðanjarðar farsótt í Austur-Evrópu og Mið-Asíu samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnir í dag. Veiran breiðist hratt út og er eiturlyfjaneysla, áhættusöm kynhegðun og neikvæður félagslegur stimpill sem fylgir því að sækja sér ráðgjöf og meðferð, eins og bensín á bálið.


 


Leo Messi spilar nýtt hlutverk sem velgjörðasendiherra UNICEF

16.jul.2010

Leo Messi, hjá knattspyrnuliðinu Barselóna og argentíska landsliðinu, fór í fyrstu vettvangsheimsókn sína í gær með UNICEF síðan hann var skipaður velgjörðasendiherra samtakanna í mars síðastliðnum.


 


Sex mánuðum frá jarðskjálftanum á Haítí eru börn enn í hættu og þurfa aðstoð

12.jul.2010

Sex mánuðum eftir að einn stærsti jarðskjálfti í 200 ár á Haítí olli mikilli eyðilegginu er það hjálparstarfsfólki mikil áskorun að mæta þörfum þeirra 800 þúsund barna og fjölskyldna þeirra sem þurfa á hjálp að halda. UNICEF veitir viðamikla neyðaraðstoð.


 


Vernd barna á HM

05.jul.2010

Nú þegar Heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla nær hámarki eru verkefni UNICEF og samstarfsaðila um vernd barna í fullum gangi. Verkefni UNICEF í tengslum við mótið eru fimm; stofnun barnvænna staða, þjálfun félagsráðgjafa, Rauða spjalds-átakið, kynning á siðareglum í ferðamannaiðnaðinum og íþróttahátíðir.


 


UNICEF dreifir 40 tonnum af hjálpargögnum í Kirgistan

22.jun.2010

Þrátt fyrir auknar áhyggjur af öryggismálum hefur UNICEF hafið stórfellda dreifingu hjálpargagna til fólks á flótta undan ofbeldinu í Kirgistan. Á sama tíma hefur hluti af fjölskyldum af kynþætti Úsbeka, sem flúðu yfir til nágrannalandsins Úsbekistan, fengið pláss í flóttamannabúðum sem UNICEF styður.


 


Átök í Kirgistan splundra fjölskyldum

18.jun.2010

Um 400 þúsund manns hafa nú misst heimili sín vegna átakanna í Suður-Kirgistan. UNICEF hefur varað við því að fjölskyldur tvístrist og að börn verði ein og umkomulaus.Yfirmaður UNICEF í Kirgistan, Jonathon Veitch, sagði að 90% flóttafólks væru konur, börn og eldra fólk.


 


Ný íslensk skýrsla um mansal í Gíneu-Bissá

16.jun.2010

UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.


 


UNICEF sendir hjálpargögn til landamæra Kyrgistan

15.jun.2010

UNICEF sendi í gær hjálpargögn með sex vörubílum frá Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, til flóttafólks sem flúið hefur átökin í Kyrgistan. Um er að ræða 76 tjöld, 2.210 teppi, 25 heilsugæslupakka sem innihalda sárabindi, sápur, klúta, bleyjur, o.fl., um 500 pakka með eldhúsáhöldum, 1.100 boli, 900 pakka af vatnshreinsitöflum og 1764 vatnsdunka.


 


Yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF vegna réttarhalda yfir barnahermanni í Guantanamó-flóa

28.maí.2010

Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fyrirhugaðra réttarhalda yfir Omar Khadr sem var handtekinn og færður til Guantanamo-flóa vegna glæpa sem hann er sagður hafa framið 15 ára gamall.


 


Nýr framkvæmdastjóri tekur við hjá UNICEF

02.maí.2010

Anthony Lake tók við sem framkvæmdastjóri UNICEF í gær. Hann er sjötti framkvæmdastjóri UNICEF í 64 ára sögu samtakanna. Lake hefur yfir 45 ára reynslu af opinberri stjórnsýslu í Bandaríkjunum og innan alþjóðasamtaka.


 


Dregur úr dauðsföllum vegna malaríu

28.apr.2010

Mikill árangur hefur náðst á síðustu árum í báráttunni gegn malaríu, ekki síst í sunnanverðri Afríku. Í stað þess að  sjúkdómurinn valdi dauða afrísks barns á þrjátíu sekúndna fresti, eins og verið hefur um árabil, er nú nær að tala um 40-45 sekúndur.


 


Dreifing hjálpargagna hefur tafist vegna eldgossins

23.apr.2010

Eins og flestum er kunnugt hefur eldgosið í Eyjafjallajökli valdið miklum truflunum á flugsamgöngum. UNICEF hefur m.a. ekki getað komið hjálpargögnum á vettvang víða um heim. Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn vinnur náið með samstarfsaðilum til að finna aðrar leiðir fyrir hjálpargögn í þeim tilgangi að minnka áhrif flugbannsins á hjálparstarfið.


 


Robbie Williams vekur athygli á neyð barna á Haítí

16.apr.2010

Nú þegar þrír mánuðir eru liðnir frá hamförunum á Haítí vekur breski söngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Robbie Williams, athygli á neyð barna í landinu. Hann hvetur fólk til að gera allt sem það getur til að veita börnum þar hjálparhönd


 


Þúsaldarmarkmið um heilnæmt vatn innan seilingar

31.mar.2010

Í nýlegri skýrslu WHO og UNICEF eru settar fram niðurstöður sem kalla á blendin viðbrögð. Annars vegar er þar fjallað um góðan árangur við að tryggja sem flestum heilnæmt vatn. Hins vegar kemur fram að almennur aðgangur að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu sé fjarlægt markmið.


 


UNICEF sameinar fjölskyldur á Haítí

25.mar.2010

Starfsmaður UNICEF hitti hinn átta ára gamla Jefferson í miðstöð fyrir umkomulaus börn í hjarta Port-au-Prince á Haítí. Jefferson hafði dvalið þar í tvær vikur, einn af þúsund börnum sem höfðu orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans mikla 12. janúar síðastliðinn. Horfa á vídeó.


 


UNICEF veitir einni milljón barna í Chile aðstoð

12.mar.2010

UNICEF mun veita einni milljón barna aðstoð eftir jarðskjálftana í Chile sem hófust 27. febrúar síðastliðinn. Það er enn óljóst hversu eyðileggingin er mikil eftir harða jarðskjálftann í gær. Talið er að yfir 500 manns hafi látist eftir fyrri skjálftann. UNICEF mun veita aðstoð á sviði vatns og hreinlætis, menntunar og verndar.


 


Lionel Messi nýr velgjörðasendiherra UNICEF

11.mar.2010

Í dag verður einn vinsælasti knattsyrnumaður heims, hinn argentínski Lionel Messi, útnefndur sem velgjörðarsendiherra UNICEF. Messi bætist þar með í hóp heimskunnra einstaklinga sem kjósa að nota frægð sína í þágu bágstaddra barna um allan heim og vekja athygli á starfi UNICEF.


 


Yfirlýsing vegna 8. mars

08.mar.2010

Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, gaf út yfirlýsingu í dag vegna alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars. Hún segir m.a. frá heimsókn sinni í miðstöð fyrir stúlkur sem bjargað hefur verið frá vændi í Gvatemala. Dagurinn minnir okkur á að mikið verk er óunnið, ekki síst við að tryggja stúlkum og konum vernd gegn ofbeldi og mistnokun.


 


Viðbrögð vegna jarðskjálftanna í Chile

02.mar.2010

UNICEF er í viðbragðsstöðu eftir jarðskjálftann á Chile síðastliðinn laugardag, sem mældist 8,8 á Richter-skala. Talið er að um 700 manns hafi látist í jarðskjálftanum og 1,5 m. manna hafa misst heimili sín, auk þess sem skólar, sjúkrahús, vegir og aðrar byggingar eyðilögðust.UNICEF hefur ekki hafið alþjóðlega söfnun vegna skjálftanna.


 


Mánuður frá jarðsjálftanum á Haítí

16.feb.2010

Mánuður er nú liðinn frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí með skelfilegum afleiðinum fyrir fjölda fólks. Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir þrjár milljónir manna – þriðjungur íbúa á Haíti – hafi orðið fyrir miklum skaða. Afleiðingar hörmunganna bætast ofan á langvarandi fátækt og óstöðugleika á Haítí.


 


UNICEF þarf 1,2 milljarða USD til að bregðast við neyð

08.feb.2010

Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Humanitarian Action Report 2010, kemur fram að UNICEF þarf um 1,2 milljarða bandaríkjadala til að koma börnum og konum til hjálpar á 28 svæðum þar sem samtökin telja að þörfin á neyðaraðstoð sé sérstaklega aðkallandi.


 


Viðamikið bólusetningarátak hafið á Haítí

04.feb.2010

UNICEF hefur hafið umfangsmikið bólusetningarátak á Haítí í samstarfi við heilbrigðistráðuneyti landins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Átakinu er ætlað að ná til rúmlega hálfrar milljónar barna undir sjö ára aldri sem verða bólusett gegn mislingum, rauðum hundum, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.


 


Starfsfólk UNICEF á Haítí vinnur við erfiðar aðstæður

02.feb.2010

UNICEF hefur verið með starfsemi á Haítí frá 1949. Starfsfólk samtakanna hefur smám saman náð að aðlaga sig að erfiðum aðstæðum í kjölfar jarðskjálftans sem skók landið af svo tortímandi mætti  þann 12. janúar síðastliðinn. Hér má sjá viðtöl við starfsfólk og fá innsýn inn í þær aðstæður sem hjálparstarfsfólk glímir við.


 


Neyðin á Haítí er neyð barna

29.jan.2010

Neyðin á Haítí er að stórum hluta neyð barna. Nærri 40 prósent Haítí-búa eru yngri en 14 ára og helmingurinn er yngri en 18 ára. Ýmsar ógnir steðja að fjölda barna á hamfarasvæðinu, s.s. næringar- og vatnsskortur, sjúkdómar og misnotkun og mansals.


 


Hin margfalda neyð barna á Haítí

25.jan.2010

Aðstoð berst nú til barna sem fóru illa út úr jarðskjálftanum sem reið yfir Haítí þann 12. janúar. Gríðarleg neyð ríkir þó enn á Haítí. Afleiðingar hörmunganna, þar með talið áhrif jarðskjálftans á heilsu og öryggi barna, bætast ofan á langvarandi ástand fátæktar og óstöðugleika á Haítí.


 


Hreint drykkjarvatn og öruggt skjól á Haítí

22.jan.2010

Fimm flugfarmar af hjálpargögnum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hafa borist til Haítí síðan að jarðskjálftinn reið yfir. Síðan söfnun UNICEF á Íslandi fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí hófst þann 14. janúar hafa um fjórar milljónir íslenskra króna safnast.


 


Frásögn starfsmanns UNICEF á Haítí

21.jan.2010

Upplýsingafulltrúi UNICEF, Tamar Hahn, er stödd á Haítí og heldur áfram að lýsa því sem fyrir augu ber. Hún heimsótti börn sem urðu viðskila við foreldra sína í jarðskjálftanum og fékk að heyra sögur þeirra. Hún skrifar einnig um aðstæður fólks og hina gríðarlegu þrautseigju Haítíbúa. Tengil á frásögn hennar má finna hér í fréttinni.


 


UNICEF hefur þungar áhyggjur af öryggi barna á Haítí

20.jan.2010

Þúsundir barna hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans á Haítí. Þessi börn eru afar berskjalda gegn ofbeldi og misnotkun. UNICEF leggur mikla áherslu á að tryggja varnarlausum börnum nauðsynlega vernd samhliða því að koma nauðsynlegum hjálpargögnum til ungra eftirlifenda.


 


Átakanleg frásögn UNICEF-starfsmanns frá Haítí

19.jan.2010

Upplýsingafulltrúi UNICEF, Tamar Hahn, er stödd á Haítí og lýsir því sem fyrir augu ber á heimasíðu UNICEF í Bretlandi. Lýsingar hennar eru vægast sagt átakanlegar. Tengil á frásögn hennar má finna hér í fréttinni.


 


2,5 milljónir króna hafa safnast

17.jan.2010

Íbúar Port-au-Prince og annara svæða á Haítí sem fóru illa út úr jarðskjálftanum þann 12. janúar sofa nú margir undir berum himni, umkringdir rústum heimila sinna.  Söfnun UNICEF á Íslandi gengur vel, en nú um helgina höfðu safnast yfir 2,5 milljónir króna. Hægt er að veita framlög hér á síðunni.


 


Neyðaraðstoð berst til Haítí

15.jan.2010

Lífsnauðsynleg hjálpargögn berast nú í stórum stíl til Haítí í gegnum birgðanet UNICEF og samstarfsstofnanna. Aukning á aðstoð er lífsnauðsynleg fyrir íbúa Haítí. Söfnun UNICEF á Íslandi er í fullum gangi, en hægt er að veita framlög hér á síðunni eða í gegnum síma 908-1000, 908-3000 og 908-5000.


 


Neyðarsöfnun fyrir Haítí

14.jan.2010

Geigvænleg eyðilegging blasir við á Haítí í kjölfar jarðskjálftans síðastliðinn þriðjudag. UNICEF hefur opnað fyrir söfnunarnúmerin 908-1000, 908-3000 og 908-5000 til stuðnings við hjálparstarf í þágu barna á Haítí. Einnig er tekið á móti framlögum hér á síðunni.


 


UNICEF í viðbragðsstöðu í kjölfar jarðskjálfta á Haítí

13.jan.2010

Afar öflugur jarðskjálfti hefur valdið miklu tjóni á Haíti. Skjálftinn átti upptök sín um 17 kílómetra frá höfuðborginni Port-au-Prince laust fyrir klukkan 22 að íslenskum tíma í gærkvöldi. Fyrstu upplýsingar benda til þess að mannfall sé mikið og skemmdir á mannvirkjum gríðarlegar. 


 


Fimm ár liðin frá flóðbylgjunum við Indlandshaf

05.jan.2010

Fimm ár eru nú liðin frá því að jarðskjálfti við strendur Indónesíu olli risaflóðbylgjum í Indlandshafi. UNICEF hefur gefið út skýrslu með samantekt yfir árangurinn af uppbyggingarstarfi í löndunum átta sem urðu fyrir mannskaða og tjóni af völdum flóðbylgnanna. 


 


Dauðsföllum vegna mislinga fækkar á heimsvísu

10.des.2009

Dauðsföllum af völdum mislinga í heiminum fækkaði úr 733 þúsundum árið 2000 í 164 þúsund í fyrra, eða um 78% á tímabilinu. Á síðustu árum hafa 700 milljónir barna verið bólusettar gegn sjúkdómnum og er talið að þær aðgerðir hafi komið í veg fyrir dauða 4,3 milljóna barna.


 


Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 20 ára

20.nov.2009

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 20 ára í dag, föstudaginn 20. nóvember. Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn hafi sjálfstæð réttindi, óháð foreldrum eða forsjáraðilum og að þau þarfnist sérstakrar umönnunar og verndar umfram hina fullorðnu.


 


Árleg skýrsla UNICEF tileinkuð Barnasáttmálnum

19.nov.2009

Sérstök útgáfa árlegrar skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum (e. The State of the World's Children) er kynnt í dag. Í skýrslunni er sérstaklega fjallað um áhrif Barnasáttála Sameinuðu þjóðanna og þær áskoranir sem enn standa í vegi fyrir að réttindi barna séu uppfyllt


 


Mikilvægt að koma í veg fyrir vannæringu

13.nov.2009

Um 200 milljón börn í þróunarlöndunum, sem eru undir fimm ára aldri, þjást af vaxtaskerðingu vegna langvarandi vannæringar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslunni Tracking Progress on Child and Maternal Nutrition sem UNICEF hefur gefið út.


 


Átak gegn barnadauða af völdum lungnabólgu

04.nov.2009

Fjórða hvert barn sem lætur lífið fyrir fimm ára aldur deyr af völdum lungnabólgu. Það gerir um tvær milljónir barna á þessum aldri á hverju ári. Enginn annar sjúkdómur á jafnstóran þátt í barnadauða og lungnabólga en á fimmtán sekúndna fresti deyr barn af hans völdum.


 


Aldrei fleiri börn bólusett

26.okt.2009

Samkvæmt nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú fleiri börn bólusett gegn banvænum sjúkdómum en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það munu að minnsta kosti 24 milljón kornabörn fara á mis við þessa mikilvægu heilsuvernd án frekara fjármagns og bætts aðgengis.


 


Alþjóðlega handþvottardeginum fagnað í annað sinn

20.okt.2009

Alþjóðlegi handþvottardagurinn var haldinn hátíðlegur í annað skiptið í síðustu viku. Markmið dagsins er að vekja athygli á því að handþvottur með sápu og vatni er ein albesta og ódýrasta forvörnin sem völ er á gegn fjölmörgum sjúkdómum.


 


UNICEF til hjálpar 50.000 indónesískum fjölskyldum

14.okt.2009

UNICEF í Indónesíu rær nú öllum árum að því að koma börnum, sem urðu fyrir barðinu á öflugum jarðskjálfta þann 30. september sl., til hjálpar. Meðal forgangaatriða samtakanna er að tryggja ómengað drykkjarvatn, koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma og dreifa skólagögnum.


 


UNICEF kemur börnum á Samóa-eyjum aftur í skóla

14.okt.2009

UNICEF vinnur nú náið með menntayfirvöldum á Samóa-eyjum við að tryggja að þarlend börn geti haldið skólagöngu sinni áfram eins fljótt og auðið er. Öflug flóðbylgja gekk nýlega yfir eyjarnar og er skólaganga mikilvægur þáttur í að koma lífi barnanna aftur í eðlilegar skorður.


 


UNICEF bregst við röð náttúruhamfara

05.okt.2009

Röð náttúrhamfara á undanförnum dögum hefur haft gífurleg áhrif á milljónir manna í Asíu og á Kyrrahafinu. Frá 26. september hafa alls sex lönd orðið fyrir barðinu á flóðum, hvirfilvindi, flóðbylgju og jarðskjálftum. UNICEF vinnur nú að því að bregðast við neyð barna í þessum löndum.


 


UNICEF á vettvangi í Indónesíu

02.okt.2009

Starfsfólk frá UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að bregðast við neyðarástandinu í Indónesíu eftir að snarpur jarðskjálfti reið yfir landið á miðvikudaginn. Talið er að allt að þriðjungur þeirra sem þurfa hjálp séu börn.


 


Dregur úr tíðni barnadauða

11.sep.2009

UNICEF kynnti í gær nýjar niðurstöður sem sýna að dánartíðni barna undir fimm ára aldri hélt áfram að lækka á árinu 2008. Samkvæmt niðurstöðunum hefur barnadauði dregist saman um 28% á árabilinu 1990 til 2008; úr 90 dauðsföllum á hverjar 1000 fæðingar í 65.


 


UNICEF fordæmir nauðganir í Austur-Kongó

08.sep.2009
Árið 1998 hófst stríð í Austur-Kongó sem er talið hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Þó stríðinu sé formlega lokið eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð. Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, heimsótti nýverið barnunga þolendur nauðgana og ofbeldis í austurhéruðum landsins. 

 


UNICEF hefur áhyggjur af flóttabörnum í Jemen

03.sep.2009

UNICEF hefur miklar áhyggjur af þróun mála í norðurhluta Jemen. Talið er að um 150.000 manns séu á vergangi vegna átaka sem þar hafa brotist út og að a.m.k. 60% þeirra séu börn. Vegna átakanna er fjöldi flóttafólks utan seilingar mannúðarsamtaka. 


 


Tíðni ungbarnadauða enn hæst í Síerra Leóne

29.jul.2009

Tíðni ungbarnadauða, þ.e. hlutfallslegur fjöldi barna sem deyr fyrir fimm ára aldur, hefur um áraskeið verið hæst í Síerra Leóne. Þó ástandið hafi batnað á undanförnum árum er ungbarnadauði þar enn mestur eða 27%. Síerra Leóne er einnig það land í heiminum þar sem tíðni mæðradauða er hæst.


 


Sífellt fleiri fá meðferð við HIV í fátækjum ríkjum

28.jul.2009

Áætlað er að í lok ársins 2008 hafi um 4 milljónir manna í fátækari ríkjum heims fengið lyfjameðferð við HIV samanborið við 3 milljónir árið 2007 og 400.000 árið 2003. Þetta kemur fram í bráðabirgðagögnum frá WHO, UNAIDS og UNICEF.


 


Milljón börn á flótta í Pakistan

22.jul.2009

UNICEF hefur miklar áhyggjur af mörg þúsundum barna sem hafa hrakist frá heimilum sínum vegna átakanna í Norðvestur-Pakistan á undanförnum vikum. Áætlað er að af tveimur milljónum flóttafólks sé um helmingurinn börn.


 


UNICEF bólusetur gegn mislingum í Gíneu-Bissá

14.jul.2009

Dagana 3. til 7. júlí stóð UNICEF í Gíneu-Bissá, ásamt fleiri samtökum, fyrir viðamiklu heilsuátaki í þágu bissáskra barna undir fimm ára aldri. Áætlað er að um 25.000 börn hafi fengið A-vítamín, aformunarlyf og bólusetningu gegn mislingum.


 


Ungmenni ræða stöðu barna á J8-fundinum

09.jul.2009

Ungt fólk víðsvegar að úr heiminum er nú saman komið í Róm til að sitja hinn svokallaða J8-fund. Fundurinn fer fram samhliða fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims, G8, og er af frumkvæði UNICEF. Fulltrúar þátttakenda munu ávarpa leiðtoga G8-ríkjanna í dag.


 


Degi afrískra barna fagnað

23.jun.2009

Í síðustu viku minntist UNICEF dags afrískra barna. Um leið fögnuðu samtökin þeim mikla árangri sem náðst hefur í að bæta lífsafkomu barna í fjölda Afríkulanda á undangengnum árum – þó gríðarlegt verk sé enn óunnið.


 


Moskítónet koma í veg fyrir dauða þúsunda barna

12.jun.2009

Á hverju ári deyja þúsundir og aftur þúsundir barna af völdum malaríu. Samkvæmt nýrri skýrslu hafa moskítónet hins vegar bjargað lífi að minnsta kosti 125.000 barna undir fimm ára aldri.


 


Vaxandi neyð í norðvesturhluta Pakistan

28.maí.2009

UNICEF hefur sent út ákall vegna átaka stjórnarhersins og uppreisnarmanna í norðvesturhluta Pakistan. Samtökin áætla að þau þurfi 41,4 milljón bandaríkjadali til að standa undir nauðsynlegri aðstoð við fólk á flótta undan átökunum. Yfir helmingur þeirra sem eru á vergangi eru börn.


 


Manchester United og FC Barcelona styrkja UNICEF

26.maí.2009
Manchester United og FC Barcelona mætast í úrslitaleik meistaradeildar UEFA á morgun. Á vellinum eru liðin miklir andstæðingar. En utan vallar eiga þau sameiginlegt markmið: að vinna gegn hinum gríðarlegu áhrifum sem HIV og alnæmi hafa á börn og ungt fólk um allan heim í samstarfi við UNICEF.

 


Börn á Sri Lanka í hringiðu átaka

13.maí.2009

UNICEF hefur fordæmt skelfileg áhrif átakanna á Sri Lanka á börn. Samtökin hafa jafnframt skorað á stjórnvöld í landinu að draga úr hernaðaraðgerum sínum til að tryggja öryggi óbreyttra borgara og skorað á LTTE að hleypa óbreyttum borgurum frá átakasvæðinu.


 


Ár liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan

11.maí.2009

Ár er nú liðið frá því að jarðskjálfti af stærðargráðunni 8,0 á Richter-skala reið yfir Sichuan-umdæmi í Kína. Á undanförnum tólf mánuðum hefur UNICEF varið 20 milljónum bandaríkjadala í neyðaraðstoð vegna hamfaranna.


 


UNICEF í viðbragðsstöðu vegna H5N1-veirunnar

30.apr.2009

UNICEF, ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna, er tilbúin til að aðstoða stjórnvöld í Mexíkó ef H5N1-veiran, hin svokallaða „svínaflensa“, heldur áfram að breiðast út.


 


Hundrað þúsund óbreyttir borgarar á flótta í Sri Lanka

30.apr.2009

Um hundrað þúsund óbreyttir borgarar, þar af þriðjungur börn, hafa flúið undan sókn stjórnarhers Sri Lanka inn á eina svæðið sem enn er undir stjórn skæruliða Tamíl-tígranna. Tugir þúsunda eru innikróaðir á átakasvæðinu.


 


Alþjóðlegur heilsudagur

07.apr.2009

Á alþjóðlegum heilsudegi, 7. apríl 2009, er lögð áhersla á mikilvægi heilsugæslu á neyðarsvæðum. Hinn alþjóðlegi dagur er haldinn til að fagna stofnun alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar eða World Health Organization.


 


UNICEF reynir að mæta þörfum barna í Súdan

17.mar.2009

UNICEF vinnur nú hörðum höndum með yfirvöldum og þeim félagasamtökum sem eftir eru í Súdan að því að komast til móts við þarfir barna eftir að ríkisstjórn landsins bannaði starfsemi 16 frjálsra félagasamtaka (NGOs). Hömlun á hjálparstarfi stefnir mikilvægum verkefnum í hættu og þar með lífi hundruð þúsunda barna.


 


Sameinast í baráttunni gegn ofbeldi á konum

09.mar.2009

Á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna í gær, 8. mars, varpaði UNICEF ljósi á ofbeldi gegn stúlkum og konum. Á hverjum degi upplifa stúlkur og konur heimilisofbeldi, kynferðislega misnotkun, ofbeldi og mansal. Í flestum tilvikum er ekki refsað fyrir slíka glæpi. Nauðganir og kynferðisofbeldi eru í stöðugt meira mæli notað sem vopn í stríðum.


 


Næringarverkefni á Gaza

25.feb.2009

UNICEF hefur áhyggjur af versnandi heilsu barna á Gaza og aukningu á tilfellum niðurgangs í kjölfar þess að fleiri heimili hafa orðið háð matar- og peningagjöfum. UNICEF reynir því að veita aðgang að hreinu vatni og hreinlæti, auk þess að dreifa næringu til barna. Styrkja hjálparstarf UNICEF á Gaza hér


 


Mest þörf á sálrænni aðstoð á Gaza

11.feb.2009

Samkvæmt könnun Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna á Gaza hafa átökin haft mikil áhrif á efnahagslegt, félagslegt og sálrænt líf Gazabúa. Könnunin sýnir fram á að tveir þriðju fjölskyldna telji sig þurfa á hjálp að halda. Þar kemur einnig fram að börn sýni merki álags, þ.e. væti rúmið, fái martraðir, séu árásargjarnari og þjáist af kvíða.


 


Stöðvum umskurð á kynfærum kvenna

06.feb.2009

Í dag er alþjóðadagur gegn umskurði á kynfærum kvenna og í tilefni þess kallar UNICEF eftir meiri aðgerðum til að stöðva megi þetta ofbeldi gagnvart stúlkubörnum. ,,70 milljónir stúlkna og kvenna sem eru lifandi í dag hafa verið umskornar," sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF.


 


Opnað fyrir söfnunarsímanúmer til styrktar Gaza

05.feb.2009

Í gær var opnað fyrir söfnunarsímanúmer til stuðnings hjálparstarfi UNICEF á Gaza. Símanúmerin eru 908-1000 fyrir 1000 króna framlag, 908-3000 fyrir 3000 króna framlag og 908-5000 fyrir 5000 króna framlag. Fyrir rúmri viku var söfnunarreikningur opnaður og nema framlög frá almenningi á Íslandi til hjálparstarfsins nú um 1,2 milljónum króna.


 


UNICEF dreifir skólagögnum til barna á Gaza

27.jan.2009

UNICEF dreifir nú skólagögnum til þeirra hundruða barna sem streyma aftur í skólana á Gaza. Samtökin vinna hörðum höndum að því að koma á fót sérstökum svæðum þar sem börn geta fundið til öryggis og verndar. Þetta er allt gert til þess að koma lífi barna í sem eðlilegast horf á ný. Þú getur styrkt hjálparstarf UNICEF á Gaza með því að smella hér


 


UNICEF biður um einn milljarð USD til neyðarhjálpar

27.jan.2009

Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2009, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega milljarð bandaríkjadala til að aðstoða börn og konur á neyðarsvæðum víða um heim.


 


Neyðarsöfnun hafin fyrir hjálparstarfi á Gaza

22.jan.2009

Eftir átökin á Gaza síðastliðnar þrjár vikur er ljóst að einn þriðji látinna - um 412 - voru börn, auk þess sem 1855 börn særðust. Gríðarleg eyðilegging blasir við og uppbyggingarstarfið er stórvaxið. UNICEF á Íslandi hefur því ákveðið að hefja neyðarsöfnun. Reikningur UNICEF á Íslandi fyrir Gaza er 515-26-102040 / kt. 481203-2950.


 


Hjálparstarf á Gaza

21.jan.2009

UNICEF dreifir hjálpargögnum til Gaza nú þegar lýst hefur verið yfir vopnahléi. UNICEF er með til reiðu sex vörubílsfarma af hjálpargögnum, þar á meðal 2.200 hreinlætispakka. UNICEF er mjög umhugað um andlega velferð barna á svæðinu og mun efla slík verkefni til muna.


 


Hætta steðjar að þunguðum konum í þróunarlöndum

15.jan.2009

Konur í fátækustu ríkjum heims eru 300 sinnum líklegri til að deyja við barnsburð eða af orsökum sem rekja má til þungunar en konur í iðnríkjum, samkvæmt árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, State of the World’s Children.


 


Tala látinna barna á Gaza fer hækkandi

12.jan.2009

Tala látinna og særðra barna í átökunum á Gaza fer hækkandi og versnar ástandið dag frá degi. Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum í gær hafa 854 Palestínumenn látið lífið síðan 27. desember, þar af eru 275 börn og 85 konur. Að minnsta kosti 3.681 hafa særst, þar af eru 1.362 börn og 528 konur.


 


UNICEF bregst við neyð barna á Gaza

06.jan.2009

UNICEF flytur nú matvæli, eldsneyti og lyf til þurfandi barna á sjúkrahúsum Gaza-svæðisins. Sjúkrahús eiga erfitt með að sinna fórnarlömbum árásanna, vöntun er á heilsugæslustarfsfólki, lyfjum, tækjabúnaði og rými til að taka á móti því fólki sem þarf á aðstoð að halda.


 


Ný fæða þróuð sem kemur í veg fyrir vannæringu

02.jan.2009

UNICEF hefur þróað nýja fæðu sem kemur í veg fyrir og veitir meðferð við vannæringu meðal barna á neyðarsvæðum. Um er að ræða „Plumpy’doz“ en það er nýjasta kynslóð af fæðu fyrir 6-36 mánaða göml börn. Þessarri nýju fæðu verður dreift til 100 þúsund barna í Sómalíu á næstu vikum.


 


Yfirlýsing UNICEF vegna árásanna á Gaza

30.des.2008
UNICEF hefur miklar áhyggjur af þeim áhrifum sem núverandi ofbeldi á Gaza mun hafa á börn. UNICEF hvetur alla hlutaðeigandi aðila að átökunum að fara eftir alþjóðlegum lögbundnum skyldum til tryggja að börn fái vernd og öll nauðsynleg hjálpargögn sem þau þurfi á að halda.


 


UNICEF flytur neyðargögn til Simbabve

23.des.2008
Flugvél með neyðargögnum frá UNICEF er lent í Harare, Simbabve, og er þeim ætlað að hjálpa íbúum landsins að stemma stigu við kólerufaraldurinn og hnignandi heilsugæslu í landinu. Flutningur neyðargagnanna mun efla enn frekar hjálparstarf UNICEF í landinu, en samtökin útvega m.a. 70% allra lyfja í landinu.


 


Góð umönnun á fyrstu árum ævi barna skiptir sköpum

11.des.2008
Umtalsverðar breytingar hafa orðið á umönnun ungra barna í ríkustu löndum heims, segir í nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag. Ísland uppfyllir níu af tíu viðmiðum sem skýrslan setur fram í samanburði sínum á umönnun ungra barna í efnalega vel stæðum löndum.


 


Dauðsföll vegna mislinga lækka um 74%

05.des.2008
Dauðsföll af völdum mislinga hafa lækkað um 74% á heimsvísu , frá 750 þúsund til 197 þúsund, frá árinu 2000 til 2007. Að auki hefur dauðsföllum vegna mislinga fækkað um 90% í Miðausturlöndum frá 96 þúsund niður í 10 þúsund á sama tímabili.


 


HIV-prófun og meðferð bjargar lífi nýfæddra barna

01.des.2008
Því fyrr sem nýfædd börn greinast og fá meðferð við HIV/alnæmi því meiri lífslíkur eiga þau, samkvæmt nýrri skýrslu fjögurra hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag. Skýrslan, sem ber heitið Children and AIDS: Third stocktaking report.


 


Miðafríkulýðveldið á ystu nöf

26.nov.2008
Á meðan átök sem geisa í nágrannalandinu Austur-Kongó hafa fengið mikla athygli er ástandið í Miðafríkulýðveldinu á mjög viðkvæmu stigi. UNICEF hefur miklar áhyggjur af vaxandi fjölda flóttabarna og kvenna og öryggi þeirra.


 


Heimsþing gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum

25.nov.2008
Um 3000 þátttakendur frá yfir 125 löndum koma saman á heimsþingi í Rio de Janeiro í Brasilíu dagana 25.-28. nóvember til að deila reynslu sinni og hugmyndum í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum.


 


Mikil neyð flóttafólks í Austu-Kongó

10.nov.2008
Ástandið fer versnandi dag frá degi í Austur-Kongó. Bardagar hamla hjálparstarfi en þó hafa UNICEF og aðrar hjálparstofnanir hafið víðtæka neyðaraðstoð til að veita þúsundum flóttafólks helstu lífsnauðsynjar. Neyðaraðstoð UNICEF er á sviði vatns, hreinlætis, næringar, bólusetningar og verndar.


 


Allt að 100 þúsund manns flúðu heimili sín í Austur-Kongó í síðustu viku

03.nov.2008
Allt að 100 þúsund manns, þar af 60 þúsund börn, flúðu heimili sín vegna harðra átaka milli vopnaðra hópa í norðurhluta Kivu í síðustu viku.


 


Vaxandi átök í A-Kongó - 50 þúsund á flótta

30.okt.2008
Bardagar í Norður Kivu, í Austur-Kongó, hafa færst í aukana síðustu 48 tímana og leitt til þess að tugir þúsunda eru nú á flótta til Goma, höfuðborgar héraðsins. Bardagarnir hafa að mestu átt sér stað í bænum Kibumba á Rutshuru-svæði.


 


Harður jarðskjálfti í Pakistan

28.okt.2008
Talið er að 160 manns hafi látist þegar jarðskjálfti, 6,4 á Richter, reið yfir suðvesturhluta Pakistan laust eftir klukkan fjögur að staðartíma (23:09 GMT á þri.). Starfsfólk UNICEF er komið á vettvang og mun meta aðstæður og þarfir fólks. Sömuleiðis er þegar hafinn flutningur á hjálpargögnum frá birgðastöð í Pakistan.


 


Þúsundir barna taka þátt í fyrsta handþvottadeginum

14.okt.2008
Frá Máritaníu til Tjad, Níger til Síerra Leóne, Fílabeinsströndinni til Austur- og Vestur-Kongó verða þorpssamfélög, leikvellir og skólastofur fullar af lífi á alþjóðlegum handþvottadegi, miðvikudaginn 15. október. Aldrei áður hefur verið farið í annað eins fræðsluátak til að vekja athygli á mikilvægi handþvottar á líf og heilsu barna.
 

 


Kólerufaraldur geisar í Gíneu-Bissá

26.sep.2008
Kólerufaraldur geisar nú í litla vestur-afríkuríkinu Gíneu-Bissá, en alls hafa yfir 7 þúsund tilfelli greinst og 133 manns látist síðan í sumar. UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) vinna með yfirvöldum og frjálsum félagasamtökum til að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins.  

 


Ný skýrsla vekur athygli á dauða kvenna við barnsburð

23.sep.2008
Í nýrri skýrslu sem kynnt var sl. föstudag af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, er athyglinni beint að þeirri hættu sem konur í þróunarlöndunum búa við á meðan á meðgöngu stendur og í fæðingu. 99 prósent mæðradauða á sér stað í þróunarlöndunum.  

 


UNICEF birtir tölur yfir minnkandi barnadauða

12.sep.2008
Í dag gerði UNICEF opinberar nýjar tölur sem sýna fram á minnkandi barnadauða á árinu 2007. UNICEF kallar þó eftir auknu átaki til að lækka barnadauða enn frekar. Þetta nýja mat sýnir 27 prósenta fækkun dauðsfalla barna undir fimm ára aldri.
 

 


Allt að 300 þúsund börn eru hjálparþurfi á Haítí

09.sep.2008
Miklar rigningar og flóð fylgdu í kjölfar fellibylja sem skollið hafa á strendur Haítí og nágrannaeyja á Karíbahafinu. Áætlað er að 650 þúsund manns séu hjálparþurfi, þar af 300 þúsund börn. UNICEF einbeitir sér að því að veita fólki skjól og mat, auk þess að koma hreinlætisgögnum og vatni til fólks. Sjúkdómar sem berast með vatni eru helstu dánarvaldar barna eftir hamfarir sem þessar.

 


UNICEF bregst við neyð í kjölfar flóða í Indlandi og Nepal

29.ágúst.2008
Mikil flóð hafa eyðilagt á 250 þúsund heimila í norðurhluta Bihar á Indlandi. Um er að ræða mestu flóð á svæðinu í 50 ár. UNICEF bregst við með því að veita skjól, lyf og fleiri nauðsynjar nú þegar fólk streymir í flóttamannabúðir í fátækasta héraði Indlands.

 


UNICEF bregst við þörfum barna og kvenna í Georgíu

18.ágúst.2008
UNICEF og samstarfsaðilar dreifa hreinlætispökkum og vatnsflöskum til 3.600 kvenna og barna sem flúið hafa heimili sitt í og umhverfis Tbilisi, höfuðborgar Georgíu. Enn fleiri hjálpargögn eru á leiðinni. Utanríkisráðuneyti Íslands sendi í gær fulltrúa á vegum friðargæslunnar til starfa hjá Barnahjálpinni.  

 


Yfirlýsing frá UNICEF vegna átakanna í Georgíu og Ossetíu

12.ágúst.2008
UNICEF hefur miklar áhyggjur af stigvaxandi ofbeldi í Suður-Ossetíu þar sem fréttir herma að fjöldi óbreyttra borgara liggi í valnum. Konur og börn eru stór hluti þeirra sem lenda í átökum og þurfa að leita skjóls.  

 


Alþjóðleg vika brjóstagjafar

05.ágúst.2008
Vikuna 1. til 7. ágúst stendur yfir alþjóðleg vika brjóstagjafar og er henni fagnað formlega í 120 löndum um allan heim. Með vikunni eru ríkisstjórnir, heilbrigðisstarfsfólk og foreldrar hvattir til að styðja nýbakaðar mæður sem þurfa tíma, rúm og hvatningu til brjóstagjafar.  

 


Íslendingar gáfu 3 milljónir til hjálparstarfs

08.jul.2008
Hvirfilbylurinn Nargis reið yfir suðausturhluta Mjanmar 3. apríl síðastliðinnmeð þeim skelfilegu afleiðingum að rúmlega 84 þúsund manns létu lífið og 54 þúsunda er enn saknað.  

 


Ungir leiðtogar frá öllum heimshornum sameinast fyrir J8 fundinn

01.jul.2008
Á morgun mun ungt fólk frá öllum G8 löndunum og þróunarlöndum hefja fjórða árlega „Junior 8“ fundinn í Chitose í Japan. Málefnin, sem tekin verða fyrir, eru svipuð þeim sem leiðtogar G8 munu taka fyrir á fundi sínum í næstu viku í Japan.

 


Yfir 10.000 skólar í Sichuan urðu fyrir miklu tjóni

12.jun.2008
Samkvæmt nýjum upplýsingum urðu yfir 10.000 skólabyggingar í Sichuan fyrir miklu tjóni í jarðskjálftanum sem reið yfir héraðið þann 12. maí síðastliðinn. Þar af eyðilögðust næstum 7.000 skólar gjörsamlega. UNICEF áætlar að fjöldi þeirra barna sem líða fyrir ástandið hlaupi á milljónum.

 


UNICEF kemur lífi barna í sem eðlilegast horf á ný

15.maí.2008

„Við hlupum upp á hæð þegar vatnsborðið hækkaði,” útskýrir Kaung Myat, 12 ára drengur, þar sem hann stendur við rústir bambuskofans sem hann bjó í ásamt fjölskyldu sinni í þorpinu Gyo Phyu í Yangon sýslu í Mjanmar.


 


Hver sekúnda skiptir máli fyrir börnin í Mjanmar

10.maí.2008

Flugvélar lentu með þrjár milljónir vatnshreinsitaflna frá UNICEF í Yangoon í gær. Áætlað er að fljúga með lyf, sjúkragögn og matvæli fyrir vannærð börn á næstu þremur dögum. Nýjar myndir voru að berast frá hamfarasvæðunum sem sýna glöggt það neyðarástand sem skapast hefur af völdum fellibylsins fyrir rúmri viku síðan. Leggið neyðarsöfnun UNICEF lið fyrir börnin í Mjanmar.


 


Þúsundir látnar í Mjanmar (Búrma)

06.maí.2008

Ljóst er að tjónið af völdum hvirfilbylsins Nargis, sem reið yfir Mjanmar (Búrma) á laugardaginn, er gífurlegt; þúsundir manna hafi látið lífið og þúsundir eru slasaðar. UNICEF vinnur að því hörðum höndum að koma lífsnauðsynjum til svæða sem verst hafa orðið úti.

 

 


Alþjóðlegur dagur vatnsins

25.mar.2008
Samkvæmt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) hafa sextíu og tvö prósent Afríkubúa ekki aðgang að viðunandi salernisaðstöðu, þ.e. klósetti sem heldur skólpi frá snertingu við umhverfi fólks.
 

 


Lífsbjörg í Gíneu-Bissá

06.mar.2008
Á 30 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Árið 2006 útvegaði UNICEF, með dyggum stuðningi íslenskra aðila, meira en 24 milljón moskítóflugnanet sem úðuð höfðu verið með skordýraeitri til þess að koma í veg fyrir malaríusmit. 
 

 


Bráðabirgðaskólar UNICEF í Kenía

26.feb.2008
Þegar fjölskylda Yvonne flúði ofbeldið í þorpinu þeirra, missti hin átta ára gamla stúlka heimili sitt, dýrmætu plasthálsfestina sína, skólabúninginn sinn og skólastofuna. UNICEF vinnur nú að því að tryggja börnum bráðabirgðamenntun í tjaldskólum í Kenía.
 

 


Neyðaraðgerðir í Rúanda

19.feb.2008
Sunnudaginn 3. febrúar 2008, gekk röð jarðskjálfta yfir Rúanda og Lýðveldið Kongó. UNICEF og samstarfsaðilar vinna nú hörðum höndum að því að bæta aðgengi að heilsugæslu, menntun, skjóli, næringu og hreinu vatni auk þess að tryggja verndun barna.
 

 


Þörfin á neyðaraðstoð er mikil

13.feb.2008
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2008, kemur fram að UNICEF þarf rúmlega 58 milljarða króna til að koma börnum og konum til hjálpar á neyðarsvæðum.
 

 


Neyðaraðstoð UNICEF í Tsjad

07.feb.2008
Tugir þúsunda flóttamanna streyma nú yfir landamærin milli Tsjad og norðurhluta Kamerún. UNICEF undirbýr víðtæka neyðaraðstoð til Tsjad og þess flóttafólks sem flúið hefur ástandið þar.
 

 


David Beckham heimsækir verkefni UNICEF í Síerra Leóne

31.jan.2008
Fótboltastjarnan og velgjörðarsendiherrann David Beckham var nýlega í heimsókn í Síerra Leóne þar sem hann skoðaði verkefni UNICEF. Að sögn Beckham fór hann til Síerra Leóne til þess að beina athygli að málefnum bágstaddra barna.
 

 


Aðstoð vegna flóða í Mósambík

30.jan.2008
Í janúar hafa flóð í ánni Zambesi í Mósambík hrakið tugþúsundir manna frá heimilum sínum, þar af er helmingurinn börn. UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð.
 

 


Tíðni barnadauða aldrei verið lægri – hægt að ná meiri árangri að mati UNICEF

22.jan.2008
Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, The State of the World’s Children 2008, er lögð áhersla á leiðir til að draga úr þeim fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf í dag, 22. janúar. (http://www.unicef.org/sowc08).

 


Fjöldi barna í hættu í Kenía

17.jan.2008
Talið er að um 100 þúsund börn séu nú á vergangi eftir að átökin brutust út í Kenía og 75 þúsund börn búi í þeim rúmlega 100 búðum sem sprottið hafa upp á síðustu vikum. Að auki er talið að mörg þúsund börn og fjölskyldur þeirra hafi þurft að flýja heimili sín og hafi fundið tímabundið skjól hjá öðrum fjölskyldumeðlimum.

 


Orlando Bloom í Nepal

17.jan.2008
Nýlega fór leikarinn Orlando Bloom til Nepal að heimsækja verkefni UNICEF, en hann er nýjasti velgjörðarsendiherra samtakanna. Í fjóra daga ferðaðist Orlando um afskekkt og fátæk þorp á vestanverðu svæðunum Kaski og Chitwan. Nepal er eitt af fátækustu löndum í heimi.

 


Átök í Kenía

15.jan.2008
Í kjölfar forsetakosninganna í Kenía 27. desember brutust út heiftarleg átök. Rekja má yfir 700 dauðsföll til ofbeldisverka eftir kosningarnar og yfir 250 þúsund manns eru nú á vergangi. UNICEF leiðir hjálparstarfið á sviði vatns,- hreinlætis,- og menntaverkefna og dreifir hjálpargögnum.

 


Áframhaldandi flóð valda skaða á Haítí

02.nov.2007
Um það leiti sem íbúar Haítí voru að snúa aftur til sins heima eftir flóð sem skall á fyrir mánuði síðan, kom enn eitt flóðið sem fylgdi í kjölfar stormsins Noel. Síðan í lok september hafa flóð og miklar rigningar gert það að verkum að flestar íbúðir eru á floti. UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð.

 


Göngunni á Ama Dablam lokið

30.okt.2007
Ingvar komst á topp Ama Dablam föstudaginn 19. október ásamt Simoni Yates. Viðar þurfti því miður að snúa við í búðum eitt þar sem hann átti erfitt með hæðaraðlögun. Þeir félagar áttu góða daga í Katmandú áður en þeir héldu af stað að skoða verkefni UNICEF í Chitwan síðastliðinn sunnudag.

 


Framlög frá Íslandi skila árangri í baráttunni gegn malaríu

26.okt.2007
Í lok árs 2006 sváfu 40% íbúa í hinu litla Vestur-Afríkuríki Gíneu-Bissá undir flugnaneti með skordýraeitri (e. insecticide-treated nets). Um er að ræða gríðarlega aukningu frá árinu 2000 þegar notkunin var einungis 2-7%.

 


Útbreiðsla malaríu minni en áður

16.okt.2007

Um 350-500 milljónir malaríutilfella greinast á hverju ári sem leiðir til dauða einnar milljónar manna árlega. Afrísk börn undir fimm ára aldri telja 80% þessarra dauðsfalla. Ný skýrsla UNICEF og samtaka sem standa að átaki gegn malaríu (Roll Back Malaria) sýnir fram á að aðgerðir til að hefta útbreiðslu malaríu eru að skila árangri, sér í lagi í sunnanverðri Afríku þar sem byrði sjúkdómsins er mest.


 


Flóð í vestanverðri og mið-Afríku

26.sep.2007

Óvenju mikil rigning hefur valdið flóðum og sent fjölda fólks á vergang. Aðstæður eru sérstaklega slæmar í vestanverðri og mið-Afríku og beinir UNICEF sjónum sínum að Ghana, Togo og Burkina Faso, en þessi lönd eru talin í mestri þörf fyrir neyðaraðstoð.


 


UNICEF sendir hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á Súmötru

14.sep.2007

UNICEF sendir í dag hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á eyjunni Súmötru í Indónesíu. Flytja þarf hjálpargögnin frá Medan í norðurhluta Súmötru og munu þau berast til Bengkulu Utara og Muko Muko, þar sem jarðskjálftinn var harðastur, nk mánudag. Um er að ræða skólatjöld, hreinlætisvörur, vatnsdúnka, könnur, moskítónet, eldunaráhöld...


 


Nýjar rannsóknir sýna að í fyrsta skipti eru dauðsföll barna færri en 10 milljónir á ári

13.sep.2007

Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða, þar á meðal hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað verulega. Dauðsföll meðal barna telja nú 9,7-10 milljónir á ári og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990.


 


Íslenska ríkið styður verkefni UNICEF um að koma íröskum börnum aftur í skóla

11.sep.2007

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 10 milljónum króna til sameiginlegs átaks Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og UNICEF til aðstoðar börnum sem eru meðal íraskra flóttamanna í Sýrlandi, Jórdaníu, Egyptalandi og Líbanon. Áætlað er að meðal íraskra flóttamanna sé um hálf milljón barna á skólaaldri sem hafa lítinn sem engann aðgang að menntun.


 


Aðstæður vegna flóðanna í Suður-Asíu enn slæmar

06.sep.2007

Monsúnrigningar í Suður-Asíu hafa verið þær mestu í manna minnum. Talið er að tæplega 3000 manns hafi týnt lífi og yfir 50 milljónir hafa þurft að flýja heimili sín. Ljóst er að þörfin er mikil og lýsti UNICEF áhyggjum sínum yfir því að hungur, sjúkdómar og vannæring gæti herjar á milljónir kvenna og barna á meðan á flóðunum stendur.


 


Jarðskjálfti í Perú hefur alvarlegar andlegar afleiðingar á börn

22.ágúst.2007

Þúsundir barna og ungmenna hafa misst heimili sín í kjölfar jarðskjálftans í suðurhluta Perú fyrir viku síðan. Mörg barnanna hafa orðið fyrir miklu tilfinningalegu áfalli og þurfa skjóta aðhlynningu. UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að veita sálræna aðstoð og stuðning til þessarra ungu fórnarlamba.


 


Átak um brjóstagjöf í Írak

13.ágúst.2007

Sumarið í Írak er heitt, Celsíusgráðurnar nálgast 50 og það gæti þýtt að hættulegir sjúkdómar herji á yngstu börnin. UNICEF er í miðju átaki um að auka brjóstagjöf mæðra og bæta næringargjöf í landinu. Barnahjálpin varar við því að samblanda af miklum hita, skorti á drykkjarvatni og hreinlæti.


 


Menntun flóttabarna frá Írak

27.jul.2007

UNICEF og Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ætla í sameiningu að koma tugum þúsunda flóttabarna frá Írak aftur í skóla. Kostnaður við slíkt verkefni hljóðar upp á 129 milljónir dollara eða 8 milljarða íslenskra króna. Írösk börn hafa í stórum hópum þurft að flýja heimaland sitt, heimili og aðra fjölskyldumeðlimi, þau hafa mörg hver lent í sálrænum áföllum og misst úr námi meira og minna síðan stríðið hófst árið 2003.


 


Alvarlegir þurrkar í Svasílandi

24.jul.2007

Alvarlegir þurrkar í Svasílandi ógna nú íbúum þessa litla lands sem liggur norðan við Suður-Afríku. UNICEF gerir ráð fyrir að þurfa nærri 2,5 milljónir bandaríkjadala til að geta sinnt þörfum barna á sviði vatns, hreinlætis, heilsugæslu, barnaverndar og næringar.


 


Þúsaldarmarkmiðum SÞ miðar hægt

04.jul.2007

Í vikunni var kynnt skýrsla Sameinuðu þjóðanna í tilefni þess að nú er það tímabil hálfnað sem alþjóðasamfélagið gaf sér til að uppfylla hin átta mikilvægu markmið í þróunarsamvinnu sem kennd eru við Þúsaldarmarkmiðin um þróun. Alþjóðasamfélagið hefur náð athyglisverðum árangri á ýmsum sviðum í þeirri viðleitni að frelsa milljónir manna úr viðjum fátæktar.


 


Misnotkun barna í skjóli loforða um betra líf

25.jun.2007

„Ég man vel eftir því þegar ég var sendur til Senegal. Ég var níu ára gamall. Mamma vildi ekki að ég færi en þar sem pabbi tekur ákvarðanirnar var ég var sendur í læri hjá bissáskum kennara í fræðum Kóransins,“ sagði hinn tólf ára gamli Demba Baldé.


 


Átak gegn stífkrampa stendur yfir í Gíneu-Bissá

30.maí.2007

Átak gegn stífkrampa stendur nú yfir í fyrsta skipti í Gíneu-Bissá. Ætlunin er að útrýma stífkrampa í mæðrum og nýfæddum börnum. Forsætisráðherra landsins hrinti átakinu af stað um helgina. Um 330 þúsund stúlkur og konur frá 15 til 49 ára verða bólusettar þökk sé stuðningi frá UNICEF.


 


UNICEF kallar eftir auknum fjárframlögum til hjálpar börnum í Írak

24.maí.2007

Í yfirlýsingu sem UNICEF sendi frá sér í gær kalla samtökin eftir 42 milljónum bandaríkjadala til að standa undir nauðsynlegu hjálparstarfi í þágu írakskra barna á næstu sex mánuðum. Um að ræða aðstoð við börn sem staðsett eru í Írak og eins börn sem hafa flúið með fjölskyldum sínum til Jórdaníu og Sýrlands.


 


Leikskólar í Kambódíu

15.maí.2007

UNICEF í Kambódíu starfar náið með afskekktum samfélögum á landsbyggðinni við að byggja leikskóla sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu. Aðeins 14% af börnum í Kambódíu á aldrinum 3 til 5 ára fara í leikskóla. Hlutfallið er minna úti á landsbyggðinni.


 


Aðstæður barna í Írak fara versnandi

18.apr.2007

Vegna afleiðinga átaka í Írak hefur UNICEF beðið ríkisstjórnir og alþjóðasamfélagið um að auka stuðning sinn við börn landsins, sem eru sífelt í hættu á að fá sjúkdóma og verða vannærð. Ástandið hefur farið vernsandi á síðustu 12 mánuðum í Írak og nágrannalöndum þess og börn eru fórnarlömb aukinna átaka og vernsandi heilsugæslu og menntakerfis.


 


Dregið úr ungbarnadauða í Síerra Leóne

16.apr.2007

Í heilsugæsluátaki sem hófst í dag í Síerra Leóne er áætlað að gefa 1,2 milljón kvenna á aldrinum 15-49 ára bólusetningu gegn stífkrampa og 85 þúsund börn frá 0-59 mánaða munu fá A-vítamín og lyf við ormum í maga.


 


Flóðbylgja á Salómonseyjum - neyðarhjálp hafin

03.apr.2007

Síðastliðið sunnudagskvöld skall flóðbylgja á Salómonseyjar í Kyrrahafi í kjölfar jarðskjálfta sem mældist 7.6 stig á Richter kvarða. Staðfest er að a.m.k 21 hafi látið lífið og 100 liggja slasaðir (samkvæmt tölum frá 3. apríl). Um 25 þúsund manns misstu heimili sín og sjúkrahús og heilsugæslustöðvar eru mikið skemmdar. Þegar er farið að meta ástandið og funduðu UNICEF og samstarfsaðilar í dag varðandi næstu skref.


 


Sögusagnir um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda

30.mar.2007

Sögusagnir eru um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda í tengslum við afvopnun í norðurhluta Kotido svæðis. UNICEF og samstarfsaðilar (þ.á.m. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna) eru í nánu sambandi við yfirvöld í Úganda og Kotido svæðis vegna þessa og hvetur til að atburðurinn verði rannsakaður af sjálfstæðum aðilum.


 


Aðstæður barna í Írak

29.mar.2007

Ný rannsókn á aðstæðum barna í Írak dregur upp nokkuð dökka mynd af lífi barna í landinu. Írösk börn þurfa að horfast í augu við aukið óöryggi í landinu þar sem jafnvel skólaganga getur falið í sér hættur. Fjöldi einstæðra mæðra hefur aukist vegna ofbeldisins og sömuleiðis fjöldi flóttafólks. Fyrstu niðurstöður rannsóknar yfirvalda í Írak og UNICEF benda til þess að aðstæður barna í landinu eru ekki góðar.


 


Hátt í 200 börn tóku þátt í fundi kvennanefndar SÞ

12.mar.2007

Í síðustu viku lauk árlegum fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem ætlað er að fara yfir stöðu kvenna og jafnréttismála í heiminum öllum. Þema fundarins í ár var stúlkubarnið og tók UNICEF því mjög mikinn þátt í undirbúningi fundarins. Þar sem það er UNICEF mjög mikilvægt að börn og ungmenni komi að málum tóku hátt í 200 börn þátt í fundinum. Fulltrúi þeirra hélt ræðu og lagði fram tillögur sem sjá má í heild sinni hér.


 


Aðstoð berst fórnarlömbum jarðskjálftanna á Súmötru

09.mar.2007

Í gær lauk UNICEF að meta þarfir fórnarlamba jarðskjálftanna á vesturhluta Súmötru. Neyðin er stærst í nágrenni Solok þar sem hörðustu jarðskjálftarnir urðu og þegar hafa átta vörubílar farið með neyðargögn þangað frá birgðastöð UNICEF í Medan á norður Súmötru.


 


UNICEF bregst við jarðskjálftum á Súmötru

06.mar.2007

Fréttir herma að yfir 70 manns hafi látið lífið í hörðum jarðskjálfta (6.2) sem varð á vestanverðri Súmötru kl. 10:49 að staðartíma í morgun. Tveimur tímum síðar kom annar skjálfti, næstum eins harður (6.0), á sama svæði. Yfir 200 manns liggja særðir og spítalar eru yfirfullir af sjúklingum. Hundruðir bygginga hafa skemmst.


 


Niðurstöður úr skýrslu UNICEF um hag barna á Vesturlöndum

27.feb.2007

Í vefriti menntamálaráðuneytisins er vakin athygli á því að niðurstaða um framtíðarstarfsvæntingar ungmenna hér á landi í nýrri skýrslu UNICEF um hag barna í ríku löndunum er ekki í samræmi við nýjustu kannanir sem gerðar hafa verið hér á landi. Þess ber að geta að UNICEF styðst við eldri kannanir en þær nýjustu sem hafa verið gerðar hérlendis.


 


UNICEF og Mia Farrow vekja athygli á neyðarástandi barna í Miðafríkulýðveldinu

26.feb.2007

Velgjörðarsendiherra UNICEF, Mia Farrow, lauk ferð sinni um Miðafríkulýðveldið með því að kalla eftir brýnni neyðaraðstoð og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á því neyðarástandi sem nú ríkir í landinu.


 


Velferð barna í ríku löndunum

14.feb.2007

Í dag kynnir UNICEF skýrslu um velferð barna og ungmenna í þeim löndum sem eru efnahagslega best sett í heiminum, „An overview of child well-being in rich countries“. Í ljós kemur að heilsufar barna og ungmenna á Íslandi er gott og lendir Ísland í öðru sæti á eftir Svíum í þeim þætti skýrslunnar. Ísland er í meðallagi í menntamálum en athygli vekur að um 10% 15 ára ungmenna á Íslandi eru einmana og finnast þeir utangarðs í samfélaginu.


 


UNICEF og WHO bregðast við sjúkdómsfaröldrum í Sómalíu

13.feb.2007

Þrátt fyrir mikið óöryggi í mið- og suðurhluta Sómalíu ætla Sameinuðu þjóðirnar að halda áfram að koma til móts við brýnar þarfir fólks á svæðinu, en þar hefur brotist út niðurgangsfaraldur sem rekja má til nýlegra flóða.


 


Falin neyð barna

29.jan.2007

Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna Humanitarian Action Report 2007, sem kynnt var í dag, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega 43 milljarða (635 milljónir usd) til að aðstoða börn og konur á 33 neyðarsvæðum víða um heim. Þetta eru annars vegar vel þekkt svæði eins og Darfur og hins vegar lönd á borð við Haítí, Eritreu og Mið-Afríkulýðveldið, sem ekki er fjallað mikið um í fjölmiðlum.


 


Menning innfæddra í Venesúela varðveitt

09.jan.2007

Añu ættlfokkurinn er einn af þeim minnihlutahópum í Venesúela sem hafa þurft að berjast fyrir tilvist sinni. Alls eru 3500 manns sem teljast til Añu og eru heimaslóðir ættflokksins í norðvesturhluta Venesúela, Lagoon Sinamaica.


 


Framkvæmdastjóri UNICEF ferðast um flóðasvæðin

03.jan.2007

Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, hóf fimm daga ferðalag sitt í gær um þau lönd sem urðu verst úti í flóðunum. Hún mun skoða aðstæður og meta þarfir þeirra hundruð þúsunda barna sem þar eru og fara yfir neyðaraðstoð UNICEF til þessa. Bellamy mun hitta börn og fjölskyldur þeirra, frjáls félagasamtök, stjórnvöld og fleiri.


 


Mikið hefur áunnist, en margt á enn eftir að gera

14.des.2006

Brátt verða tvö ár liðin frá því flóðbylgja fór yfir strendur landa við Indlandshaf og skók samfélögin þar, sem og alla heimsbyggðina. Af því tilefni gefur UNICEF út skýrslu þar sem kemur fram hvað hefur áunnist á þessum tveimur árum, farið er yfir aðstæður barna í dag og hver næstu skrefin verða í hjálparstarfinu.


 


Eflum vald kvenna til hjálpar börnum

11.des.2006

Ný skýrla um aðstæður barna um allan heim. Samkvæmt skýrslunni leiðir jafnrétti kynjanna til „tvöfalds arðs“ fyrir bæði konur og börn og er nauðsynlegt fyrir heilbrigði og þróun fjölskyldna, samfélaga og þjóða.


 


Svasíland með augum Sigur Rósar

01.des.2006

Á haustdögum ferðaðist hljómsveitin Sigur Rós til Svasílands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til að kynna sér HIV-verkefni samtakanna þar í landi. Ferðin hafði mikil áhrif á hljómsveitina og ákváðu þeir að efna til sýningar á ljósmyndunum sem þeir tóku í heimsókninni. Sýningin ber yfirskriftina: Yfirgefna kynslóðin: Svasíland með augum Sigur Rósar.


 


Valgerður Sverrisdóttir heimsækir birgðastöð UNICEF

28.nov.2006

Á dögunum heimsótti Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, birgðastöð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem hún kynnti sér hvernig UNICEF pakkar og sendir hjálpargögn til barna um allan heim.


 


Íslensk fyrirtæki styrkja dreifingu malaríu-flugnaneta í Gíneu-Bissá

21.nov.2006

Í síðustu viku hófst átak UNICEF í Gíneu-Bissá um að koma í veg fyrir malaríusmit. Í átakinu verður 180 þúsund malaríu-flugnanetum dreift til barna og mæðra þeirra, börn fá A-vítamín og lyf við ormum í maga. Áætlað er að flugnanetin komi til með að bjarga 4000 börnum á ári sem annars myndu deyja af völdum malaríu.


 


Skýrsla framkvæmdarstjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum

12.okt.2006

Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel félagslega samþykkt samkvæmt nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem gerð er heildstæð greining á ofbeldi gegn börnum um allan heim.


 


Sameinuðu þjóðirnar fordæma aukið ofbeldi í Darfur héraði

09.okt.2006

Ofbeldi gegn konum og börnum í Darfur héraði er orðið ógnvænlega algengt. Títt hefur verið um gróft ofbeldi frá því borgarastríðið hófst árið 2003, en síðastliðna mánuði hefur þó árásum á konur og börn, bæði innan og utan flóttamannabúða, stórfjölgað.


 


Palestínsk börn fá sálræna aðstoð

05.okt.2006

Á þessu ári hefur 91 barn týnt lífi sínu í átökum á Vesturbakkanum og Gaza, það er nærri helmingi fleiri en allt árið 2005. Ótti og ofbeldi er hluti af daglegu lífi barna á hernumdu svæðum Palestínu og þau þjást vegna aukins óróleika og kvíða.


 


Neyðin í Darfur - yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF

15.sep.2006

Eftirfarandi yfirlýsing var send frá Ann M. Veneman, framkvæmdastjóra UNICEF í dag: „Enn eru börn fórnarlömb tilgangslausra morða í Darfur. Áætlað er að 400 þúsund manns hafi týnd lífi í átökunum. Um 1,9 milljónir manna hafi þurft að flýja heimili sín og nærri 3 milljónir þurfa að treysta á alþjóðlegar hjálparstofnanir um mat, skjól og heilsugæslu.


 


Samstarf UNICEF og fótboltaliðs Barselóna

08.sep.2006

Fótboltafélagið Barselóna og UNICEF kynntu í gær samstarf um að bæta líf barna í þróunarlöndunum. Þau fyrstu sem munu njóta góðs af samstarfinu eru börn sem hafa orðið fórnarlömb HIV/alnæmis í Svasílandi. Barselóna kynnti nýja treyju fyrir árið 2006-2007 sem skartar UNICEF lógóinu í fyrsta skipti að framan.


 


Tvær flugur í einu höggi - áhrifarík neyðaraðstoð í Líbanon

06.sep.2006

Verið er að veita mikla neyðaraðstoð í Líbanon og hefur UNICEF þróað nýjar og áhrifaríkar leiðir til að ná sem mestum árangri fyrir sem minnst fé. Strax eftir að sprengjuárásum Ísraela lauk hóf UNICEF að dreifa miðum og hengja upp veggspjöld sem miðuðu að því að fræða fólk um hvernig UXO-klasasprengjur líta út og hvernig á að bera sig að ef fólk finnur slíkar sprengjur.


 


Börn fara aftur í skóla

24.ágúst.2006

Um þessar mundir eru íslensk börn að byrja í skóla á ný eftir sumarfrí. Í Líbanon er ástandið viðkvæmt en samkvæmt UNICEF liggur nú mikið við að skólastarf í Líbanon raskist sem minnst. UNICEF styrkir verkefni ríkisstjórnar Líbanon sem eiga að tryggja það að börn byrji í skólanum á réttum tíma.


 


Mikill vatnsskortur í Líbanon

22.ágúst.2006

Fyrstu athuganir benda til að allt vatnskerfi í suðurhluta Líbanon sé mikið skemmt eftir mánaðarlöng átök þar. Af tólf stöðum, sem urðu fyrir árásum, voru vatnsleiðslur á tíu þeirra illa skemmdar eða gersamlega eyðilagðar, samkvæmt fréttum frá fulltrúum UNICEF í Líbanon.


 


Sprengingar í Sri Lanka

15.ágúst.2006

Sprengingarnar síðastliðinn mánudag í Mullaitivu svæði, sem urðu fjölda stúlkna að bana og særðu enn fleiri, er afleiðing vaxandi ofbeldis á Sri Lanka. „Þessi börn eru saklaus fórnarlömb ofbeldis,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF í dag.


 


Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi - lélegar samgöngur hamla hjálparstarfi

04.ágúst.2006

Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi eftir að Ísraelar hófu árás á suðurhluta landsins 12. júlí síðastliðinn. UNICEF hóf strax víðtæka neyðaraðstoð þrátt fyrir að erfitt sé að komast að vissum svæðum þar sem allir vegir og flugvellir hafa verið eyðilagðir. Þegar þetta er ritað er tala látinna 860 og 3265 liggja særðir vegna átakanna, en ljóst er að fleiri munu liggja í valnum ef heldur áfram sem horfir.


 


Neyðarástand vegna átakanna í Austur-Kongó

24.jul.2006

Í nýrri skýrslu UNICEF sem kynnt var í dag kemur fram að 1200 manns láta lífið daglega sökum átakanna í Austur-Kongó. Helmingur þeirra eru börn. Talið er að tugir þúsunda íbúa hafi orðið fórnarlömb ofbeldis, en miklu fleiri hafa látist vegna sjúkdóma og vannæringar sem rekja má til átakanna.


 


Ástandið í Líbanon versnar

18.jul.2006

Samkvæmt upplýsingum frá UNICEF fer ástandið í Líbanon hraðversnandi eftir að átök brutust þar út. Áætlað er að átökin hafi þegar kostað yfir 200 borgara lífið og sært yfir 400, um 30 prósent þeirra eru börn. Talið er að um 400 þúsund manns hafi flúið heimili sín. Flest þeirra hafa flust til ættingja og vina á öruggari svæðum, en allt að 40 þúsund manns hafa leitað skjóls í skólabyggingum.


 


UNICEF veitir neyðaraðstoð á eyjunni Jövu í Indónesíu

01.jun.2006

Nú er ljóst að tæplega 6.000 manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir eyna Jövu í Indónesíu laugardaginn 27. maí. Þúsundir særðust í skjálftanum og um 200.000 manns eru taldir hafa misst heimili sín. Frá því á mánudag hefur UNICEF unnið ötullega að því að koma neyðargögnum til fórnarlamba jarðskjálftans.


 


Þurrkar ógna börnum í austurhluta Afríku

15.maí.2006

Á síðastliðnum árum hafa þurrkar í austurhluta Afríku sífellt versnað. Árið 2000 dóu tæplega 100.000 manns vegna þurrka í sama héraðinu. Meirihluti þeirra sem þurrkarnir hafa áhrif á eru hirðingjarnir og fjölskyldur þeirra sem flakka um löndin Sómalíu, Eþíópíu, Kenía, Djibouti og Erítreu í leit að æti fyrir hjarðir sínar.


 


Lítið dregið úr vannæringu barna

02.maí.2006

Samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag hefur lítið sem ekkert dregið úr vannæringu barna í þróunarlöndunum síðustu 16 árin. Tæpur helmingur vannærðra barna í heiminum býr í Pakistan, Bangladesh og Indlandi í Suður-Asíu. Afturför gætir hjá sumum ríkjum Miðausturlanda og framfarir eru hægar meðal barna í Afríku.


 


UNICEF kynnir styrkveitingu til verkefnis í Nígeríu

28.apr.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, mun kynna stuðning fjölda íslenskra fyrirtækja og einstaklinga við stórt styrktarverkefni Barnahjálparinnar í Nígeríu fimmtudaginn 4. maí nk. Um er að ræða sameiginlegt átak nokkurra fyrirtækja sem stunda viðskipti í Nígeríu, auk annarra fyrirtækja og einstaklinga.


 


Ungmenni taka þátt í baráttunni gegn alnæmi

23.mar.2006

Samkvæmt tölum frá UNAIDS breiðist HIV hraðast út í Austur Asíu en á nokkru öðru svæði í heiminum. ,,Við erum á krossgötum á þessu svæði og til að bregðast við með öflugum hætti verður að taka tillit til barna og ungmenna og þau verða að taka þátt,” sagði svæðisstjóri UNICEF í Austur Asíu, Anupama Rao Singh, við opnun ráðstefnu um börn og HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu sem hófst í Hanoi í Víetnam í gær.


 


Unicef 60 ára

16.mar.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1946 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. Á þessum áratugum hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn.


 


Börn í Bangladess fá bólusetningu

10.mar.2006

Í síðasta mánuði fóru bólusetningarteymi, stutt af UNICEF, um Bangladess í stærsta bólusetningarverkefni gegn mislingum í heimi. Áætlað er að ná til 33,5 milljóna barna. Teymin fóru á alla staði sem börn eru að finna; í skóla, garða, stofnanir, íbúðahverfi, strætóa og lestarstöðvar.


 


Skólar opna aftur á Fílabeinsströndinni

02.mar.2006

Ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar hefur ákveðið að taka upp próf að nýju og mun það gera 80 þúsund nemum kleift að taka þau próf sem nauðsynleg eru til að halda áfram menntun sinni. Vegna mikilla óeirða í landinu hefur réttur barna til náms verið margbrotinn.


 


Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram

14.feb.2006

Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram þar sem áætlað er að útrýma sjúkdómnum árið 2007. Ljóst er að UNICEF og samstarfsaðilar hafa mikið verk fyrir höndum til að það megi nást. UNICEF í Nígeríu sendi upplýsingar um stöðu mála þar í landi. Þann 3. febrúar 2006 höfðu 786 mænusóttartilfelli verið staðfest í 21 héraði í Nígeríu fyrir 2005. Til samanburðar voru tilfellin 779 í 30 héruðum árið 2004.


 


Björk í Banda Aceh

06.feb.2006

Björk Guðmundsdóttir fór til Banda Aceh, á norðanverðri Súmötru í Indónesíu, dagana 26.-27. janúar. Tilgangur heimsóknar hennar var að heimsækja verkefni og uppbyggingarstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eftir flóðbylgjuna sem reið yfir löndin við Indlandshaf fyrir rúmu ári síðan.


 


Bindum endi á misnotkun barna í Simbabve

25.jan.2006

Eftir fréttir þess efnis að skólastjóri hafi verið kærður vegna ásakana um hafa nauðgað sex nemendum í barnaskóla hefur UNICEF brugðist harkalega við og hafið herför gegn misnotkun barna í Simbabve. UNICEF telur það mjög alvarlegt að kynferðisofbeldi og önnur misnotkun á börnum hafi aukist í Simbabve.


 


Þurrkar ógna börnum í Kenía

19.jan.2006

Einn mesti þurrkur í Kenía í áraraðir ógnar nú lífi og heilsu þúsunda barna í norðurhluta landsins. Nýlegur regntími var stuttur í norður- og austurhluta landsins þar sem fólk lifir á hirðingjabúskap. Undir venjulegum kringumstæðum ætti búfénaður að vera við góða heilsu og nærast á nýsprottnu grasi, en í stað þess liggja hræ þeirra við vegina.


 


Flóðbylgjukynslóðin er vongóð um framtíðina

06.jan.2006

Börn í Indónesíu eiga hvað erfiðast uppdráttar eftir flóðbylgjuna og í þeim fjórum löndum sem tóku þátt í könnuninni hafa börn áhyggjur af öðrum jarðskjálfta og annarri flóðbylgju.
Einu ári eftir að flóðbylgjan breytti lífi þeirra á hörmulegan hátt eru börn á Indlandi, Sri Lanka og Taílandi vongóð um framtíðina, meðan börn í Indónesíu hafa þurft meiri tíma til þess að jafna sig.


 


Ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf

28.des.2005

Annan í jólum var eitt ár liðið frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Hamfarirnar sem fylgdu voru geigvænlegar og kölluðu á neyðaraðstoð af þeirri stærðargráðu sem engin dæmi voru fyrir. Ríkisstjórnir og einstaklingar um allan heim sýndu mikið örlæti og hjálparstofnanir eins og UNICEF fengu liðstyrk hvaðan æva að úr heiminum.


 


Betra er að þiggja en gefa

16.des.2005

Þau börn sem njóta góðs af verkefnum UNICEF í Gíneu-Bissá voru þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir nokkru að fá veglegan styrk frá þremur íslenskum fyrirtækjum, Baugi Group, FL Group og Fons. Eins og kunnugt er héldu styrktaraðilar okkar veislu þar sem boðsgestir gátu veitt styrki til verkefna UNICEF í þessu sjötta fátækasta ríki í heimi, Gíneu-Bissá.


 


Á jaðri samfélagsins - hundruð milljónir barna eru ósýnileg umheiminum

14.des.2005

Hundruð milljónir barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum, sagði UNICEF í dag í tengslum við kynningu á skýrslunni. Þema skýrslunnar í ár eru börn sem standa utan við samfélagið, eru ekki sýnileg umheiminum og er þar af leiðandi sérstaklega erfitt að ná til.


 


UNICEF hlúir að þörfum barna á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan

09.nov.2005

Enn er mikil þörf á aðstoð á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan og hefur UNICEF unnið hörðum höndum á síðustu vikum við að tryggja heilsu og öryggi barna sem eiga um sárt að binda vegna skjálftans.


 


UNICEF hefur alþjóðlega herferð gegn alnæmi barna

25.okt.2005

Alþjóðleg herferð UNICEF, undir slagorðinu “Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi” er ætlað að vekja athygli heimsbyggðarinnar á þeirri staðreynd að málefni barna hafa verið undanskilin frá alþjóðlegum aðgerðaráætlunum gegn alnæmi.


 


Mikilvæg aðstoð berst til barna í Pakistan

17.okt.2005

Mikilvæg aðstoð frá UNICEF berst nú til afskekktra svæða í Pakistan sem urðu illa úti í jarðskjálftanum sem reið yfir laugardaginn 8. október. Fjölmörg þorp á þessu fjalllenda svæði einangruðust þegar vegir eyðilögðust í jarðskjálftanum. Verið er að koma birgðum til þeirra þurfandi loftleiðis frá vörugeymslu UNICEF í Karachi, höfuðborg Pakistan, til Peshawar og þaðan til Mansehra.


 


Hjálparstarf UNICEF í Pakistan

10.okt.2005

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, vinnur nú hörðum höndum við hjálparstarf eftir jarðskjálftann sem reið yfir Pakistan, Indland og Afganistan á laugardagsmorgun. Aðeins klukkutímum eftir hamfarirnar hóf UNICEF að flytja teppi, föt, tjöld, sjúkragögn, fæðu fyrir ungabörn, sápur, vatn og vatnshreinsitöflur á svæðið.


 


UNICEF veitir 2,5 milljónum króna til hjálparstarfs í Pakistan

10.okt.2005

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur sent út 2,5 milljónir króna til neyðaraðstoðar fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. UNICEF hefur óskað eftir 20 milljónum Bandaríkjadala (yfir einum milljarði ISK) til að geta veitt neyðaraðstoð til barna og fjölskyldna sem lifðu af jarðskjálftann.


 


Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu

29.sep.2005

Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Um 27 milljónir barna og 40 milljónir þungaðra kvenna eru ekki bólusett ár hvert og í 41 landi eru færri börn bólusett í dag en fyrir áratug síðan.


 


Saga af baráttu feðga við mænusótt

26.sep.2005

Þó að svo miklum árangri hafi verið náð í að útrýma mænusótt hafa nokkur tilfelli verið skráð í Nígeríu og nágrannaríkjum þess. UNICEF telur að ef takist ekki að útrýma mænusótt í Nígeríu geti hún ógnað veröldinni að nýju. Sjúkdómurinn leggst á börn, kripplar þau og lamar.


 


Pétur Björnsson styrkir verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá

13.sep.2005

Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá 5 milljóna króna styrk. Fjárstuðningnum verður varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun.


 


Alvarlegt ástand í kjölfar fellibylsins Katrínar við Mexíkó-flóa

05.sep.2005

Þúsundir fórnarlamba fellibylsins Katrínar við Mexíkó-flóa búa nú við slæmar aðstæður þar sem mikil þörf er á hreinu vatni og mat. Frá og með síðastliðnum föstudegi var talið að 1,2 milljónir manna væru heimilislausar og allt að þriðjungur eða fjórðungur þeirra eru börn undir 16 ára aldri.


 


Börnin í Beslan ári síðar

25.ágúst.2005

Þann 1. september 2004, fyrir ári síðan, réðust gíslatökumenn inn í skóla númer eitt í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Tilhlökkun barna og foreldra við upphaf nýs skólaárs breyttist fljótt í martröð. Þremur dögum síðar voru yfir 170 börn látin ásamt hundruðum fullorðinna.


 


Matvæli og bólusetningar bjarga lífi barna í Níger

19.ágúst.2005

Með börn sín á bakinu bíða mæðurnar í þorpinu Tsaki þolinmóðar eftir því að fá matvæli og læknisaðstoð, en slík þjónusta er hluti af alþjóðlegu átaki til þess að stöðva hungursneyð í þessu landi sem er svo illa hrjáð af þurrkum.


 


Hin fjögurra ára gamla Su-Sze safnar 8.800 Bandaríkjadölum fyrir börn í Malasíu

16.ágúst.2005

Malasíubúar eru stoltir af hinni fjögurra ára gömlu Kam Su-Sze en hún hefur safnað meira en 33.000 malasískum ringitum (um 615.000 íslenskum krónum) fyrir UNICEF, með því að selja póstkort sem hún sjálf hafði myndskreytt.


 


Börn í Níger í hættu

02.ágúst.2005

Hungur og vannæring ógna nú lífi 3,6 milljóna manna í Níger, meðal þeirra eru 800.000 börn undir fimm ára aldri. UNICEF og samstarfsaðilar hafa lagt fram beiðni um framlag að upphæð 14,6 milljóna Bandaríkjadala til þess að stemma stigu við hungursneyðinni sem læsir nú klóm sínum um landið.


 


Börn og ungmenni leggja tillögur sínar fram við G8

06.jul.2005

Eftirfarandi eru niðurstöður C8-fundar UNICEF sem lauk í gær 5. júlí í Dunblane, Skotlandi. Fulltrúarnir, sem margir hafa reynslu af mikilli fátækt, HIV/alnæmi, stríði og vinnuþrælkun, voru 17 ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára frá þróunarlöndum og G8-ríkjum. Niðurstöðurnar voru kynntar í gær og afhendar fulltrúm G8 fundarins.


 


Ungmenni hafa áhrif á G8

04.jul.2005

Um þessar mundir fer fram fyrsti C8-fundur UNICEF í Dunblane, Skotlandi, en hann hófst 3. júlí og stendur til 5. júlí, rétt áður en leiðtogar G8 ríkjanna hittast. Á fundinum munu ungmenni, undir 18 ára, frá átta af fátækustu ríkjum í heimi – Bútan, Kambódíu, Moldavíu, Jemen, Gíneu, Síerra-leone, Lesótó og Bólivíu, koma saman ásamt ungmennum frá nokkrum G8 ríkjum – Rússlandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bretlandi.


 


LIVE8 og UNICEF á Íslandi

01.jul.2005

Baugur Group, Sirkus og UNICEF á Íslandi verða í samstarfi í tengslum við Live8-útsendinguna hér á landi 2. júlí nk. Á meðan fólk um allan heim safnast saman til að láta sig misskiptingu heimsins varða, eru Íslendingar hvattir til að gerast heimsforeldrar og þannig hafa áhrif á líf barna sem hafa ekki sama aðgang að lífsgæðum og við.


 


Skýrsla UNICEF eftir sex mánuði

24.jun.2005

Ný skýrsla UNICEF um neyðaraðgerðir- og þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum við Indlandshaf er komin út nú þegar 6 mánuðir eru liðnir frá atburðunum þar sem yfir 200 þúsund manns misstu lífið og sem skildu um 1,5 milljón börn eftir hjálparþurfi.


 


Fimm starfsreglur UNICEF

22.jun.2005

Þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum hefur gengið vonum framar; ekki hefur orðið vart við sjúkdómsfaraldra, enginn dó úr hungri, börn eru farin aftur í skóla og fólk var haldið við góða heilsu og verndað. Hjálparstofnanir hafa þó þurft að takast á við ýmis vandamál síðastliðið hálft ár.


 


Mismunandi þarfir landanna við Indlandshaf

22.jun.2005

Hvert þeirra átta landa sem lentu í flóðbylgjunum við Indlandshaf hafa mismunandi þarfir, allt frá því að endurbyggja skóla til að koma á viðunandi vatns- og hreinlætiskerfi. UNICEF styrkir hvert land fyrir sig og fer eftir heildaráætlun hverrar ríkisstjórnar um uppbyggingu.


 


Samantekt á aðgerðum UNICEF í Asíu

22.jun.2005

Nú, þegar hálft ár er liðið frá hamförunum við Indlandshaf, gefst hjálparstofnunum tækifæri á að líta yfir árangur starfs síns og verkefnin framundan. UNICEF Ísland hefur þegar sent yfir 11,5 milljónir króna til hamfarasvæðanna af rúmlega 18 milljónum sem UNICEF Ísland hafði til ráðstöfunar frá Neyðarhjálp úr norðri.


 


Ann M. Veneman tekur við sem framkvæmdastjóri UNICEF

03.maí.2005

Ann M. Veneman er nýr framkvæmdastjóri UNICEF og tók hún við nú um síðustu mánaðarmót og varð þar með fimmti framkvæmdastjóri UNICEF í 60 ára sögu samtakanna. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til að leiða UNICEF, sem eru ein merkustu hjálparsamtök í heimi,“ sagði Veneman á sínum fyrsta starfsdegi í höfuðstöðvunum í New York.


 


Bellamy kveður UNICEF eftir tíu ára setu í stól framkvæmdastjóra

28.apr.2005

Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, lýkur tíu ára tímabili sínu sem framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, um næstu mánaðarmót. Árangur UNICEF í forystu Bellamy er ótvíræður. Hún hefur ekki bara lagt áherslu á að bjarga lífi barna, heldur einnig á að tryggja þeim góðan uppvöxt í vernduðu og barnvænu umhverfi.


 


Of mörg börn ganga ekki í skóla

21.apr.2005

Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í menntun barna í þróunarlöndunum ganga of mörg börn ekki í skóla, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF. Skýrslan, sem nefnist „Progress for Children”, fjallar um jafnrétti kynjanna og grunnmenntun. Hún er samstarfsverkefni margra aðila innan alþjóðasamfélagsins sem vilja stuðla að því að menntun sé jafn aðgengileg stúlkum sem drengjum.


 


Upphaf skólaárs í Nepal

01.apr.2005

UNICEF vill tryggja öryggi barna í skólastofum í Nepal nú þegar nýtt skólaár er að hefjast þar í landi. Nýtt skólaár á að vera tækifæri til að tryggja það að ofbeldi og ótti verði ekki hluti af skólanáminu, segir fulltrúi UNICEF í Suður-Asíu.


 


Neyðarhjálp í Indónesíu

29.mar.2005

UNICEF tekur nú þátt í neyðaraðgerðum, ásamt öðrum hjálparsamtökum innan Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar jarðskjálftans við strendur Indónesíu í gær. UNICEF mun dreifa hjálpargögnum til skjálftasvæðanna svo sem segldúkum, tjöldum, vatnstönkum og sjúkrakössum, sem hannaðir eru fyrir slíkar aðstæður.


 


Yfir 440 börn njóta góðs af styrk Baugs í Gíneu-Bissá

03.mar.2005

Baugur Group styrkir nú verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem snýr að umönnun ungabarna í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Styrkurinn hljóðar upp á 20 milljónir króna og er það hæsti styrkur sem veittur hefur verið af fyrirtæki á Íslandi til eins þróunarverkefnis.


 


Jarðskjálfti í Íran

22.feb.2005

Jarðskjálfti mældist 6.4 á Richter skala í suðvesturhluta Íran í nótt. Þarlendir fjölmiðlar segja að um 175 manns hafi týnt lífi og miklu fleiri hafi slasast. Landskrifstofa UNICEF í Íran hefur sent hjálparstarfsmenn til jarðskjálftasvæðisins, en aðstæður þar eru erfiðar vegna rigninga.


 


UNICEF fer á jarðskjálftasvæðin í Íran

22.feb.2005

Sérfræðingar UNICEF í neyðaraðstoð eru komnir til jarðskjálftasvæðisins í Zarand, í suðvesturhluta Íran, til að meta eyðilegginguna og hvort að þörf sé fyrir neyðaraðstoð. Tala látinna er kominn upp í 400 og hafa um 30 þúsund manns orðið fyrir einhvers konar áhrifum af völdum skjálftanna.


 


Um 246 milljónir barna í vinnuþrælkun

21.feb.2005

Í dag kynnti landsnefnd UNICEF á Bretlandi nýja skýrslu sína um barnaþrælkun, en samkvæmt henni eru 246 milljónir barna í ánauð vinnuþrælkunar í dag. Börn, allt niður í fimm ára gömul, eru svift frelsinu sem fylgir barnæskunni og þeim grundvallarréttindum sem öll börn eiga að hafa eins og t.d. að ganga í skóla.


 


Börnin komin í skólana og farin að brosa aftur

11.feb.2005

Hambantota er lítið fiskiþorp á suðurströnd Sri Lanka varð illa úti í hamförunum. Bærinn var eitt sinn þekktur fyrir fiski- og saltiðnað sinn, en flóðbylgjan eyðilagði byggingar, báta og bryggjur og lamaði þar með efnahag bæjarins. Þúsundir fjölskyldna eru nú án atvinnu. UNICEF hefur hrint af stað viðamiklu átaki í þessu svæði.


 


Neyðarástand í Lýðveldinu Kongó

08.feb.2005

Neyðarástand hefur skapast í Lýðveldinu Kongó (Kinshasa) vegna átaka í austurhluta landsins. UNICEF aðstoðar nú um 50 þúsund almenna borgara sem hafa þurft að flýja í flóttamannabúðir. Verstu átökin eiga sér stað á svæðinu Djugu, norður af Bunia. Samkvæmt UNICEF hafa flest þorpin verið rænd og brennd af vopnuðum hópum.


 


Stjörnurnar flykkjast að til að styrkja fórnarlömb flóðbylgjunnar

03.feb.2005

Sameinuðu þjóðirnar, Barnahjálp SÞ og tónlistarstöðin MTV hafa tekið höndum saman og munu halda söfnunartónleika þann 3. febrúar kl. 15:00 í Bangkok, Tælandi. Fram koma margir af þekktustu tónlistamönnum nútímans og nokkrir gamlir og góðir. Meðal þeirra eru Bryan Adams, Ashanti, Enrique Iglesias, og fleiri..,


 


UNICEF fagnar framlagi Gates-sjóðsins og Noregs til bólusetninga

24.jan.2005

UNICEF fagnaði í dag nýjum framlögum frá Sjóði Bill og Melindu Gates og ríkisstjórn Noregs til hnattrænna bólusetningarverkefna, en framlögin nema yfir 1 milljarði Bandaríkjadala sem deilist yfir tíu ára tímabil. UNICEF sem er leiðandi í bólusetningum barna, fagnaði þessari framtíðarskuldbindingu við bólusetningar.


 


Ann Veneman tekur við af Carol Bellamy í maí 2005

17.jan.2005

Ann Veneman, fráfarandi landbúnaðarherra Bandaríkjanna, var á dögunum útnefnd af Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem næsti framkvæmdastjóri UNICEF – Barnahjálpar SÞ. Veneman mun taka við af Carol Bellamy, sem nú hefur gegnt stöðu framkvæmdarstjóra UNICEF í tíu ár.


 


Velgjörðarsendiherrar UNICEF tala um hamfarirnar við Indlandshaf

13.jan.2005

Fólk um allan heim er snortið af þeim hörmungum sem áttu sér stað annan dag jóla. Velgjörðarsendiherrar UNICEF hafa látið til sín taka til að vekja athygli á neyð þeirra sem lifðu af og ekki síst til að hvetja fólk að styrkja hjálparstofnanir á borð við UNICEF sem nú starfa dag og nótt við neyðaraðstoð.


 


David Beckham skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF

13.jan.2005

Nýskipaður velgjörðarsendiherra UNICEF, David Beckham, mun taka þátt í sjónvarpsherferð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum flóðanna í löndunum við Indlandshaf. UNICEF áætlar að það kosti rúma 9 milljarða íslenskra króna að tryggja að þörfum barna verði mætt næstu sex mánuði.


 


Clinton-sjóðurinn og UNICEF hefja vatnsátak á flóðasvæðunum

11.jan.2005

Bill Clinton fyrrvverandi forseti Bandaríkjanna og Carol Bellamy, framkvæmdarstjóri UNICEF tilkynntu í gær sameiginlegt átak þar sem ætlað er að færa börnum og fjölskyldum þeirra, sem lentu í flóðbylgjunni, hreint drykkjarvatn og hreinlætiskerfi (vatnslagnir, skolplagnir o.fl.).


 


Aðgerða krafist við að bjarga börnunum frá misnotkun

10.jan.2005

Þörf er á tafarlausum aðgerðum á flóðasvæðunum ef bjarga á börnunum frá misnotkun, vændi og ofbeldi, og til að koma í veg fyrir að þau gleymist, samkvæmt fréttum frá aðalstöðvum UNICEF þann 8. janúar. UNICEF skipuleggur lykilaðgerðir sem nauðsynlegar eru til að vernda munaðarleysingja og önnur börn.


 


Yfirlitsgrein yfir starf UNICEF á hamfarasvæðunum

10.jan.2005

UNICEF starfar í öllum þeim löndum sem urðu verst úti í hamförunum og gat því strax hafið víðtæka neyðaraðstoð. UNICEF telur að a.m.k. einn þriðji hinna látnu hafi verið börn og að yfir 1,5 milljón barna séu nú hjálparþurfi. UNICEF gerir allt til að tryggja að þörfum barna sé mætt og að sú kynslóð sem lenti í hamförunum muni fá þá aðstoð sem á þarf að halda.


 


UNICEF bregst fljótt við hamförunum í Asíu

05.jan.2005

Neyðaraðstoð frá UNICEF hefur nú borist eða er komin vel á leið til þeirra svæða sem verst urðu úti eftir flóðbylgjurnar í síðustu viku. UNICEF brást strax við fréttunum af flóðbylgjunum í Asíu með sendingu 200.000 neyðarsjúkrapakka frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar höfðu fimm flugvélafarmar með ýmsum neyðargögnum verið sendir.


 


Dæmi um kostnað í neyðaraðstoð

05.jan.2005

Oft gera einstaklingar sér ekki grein fyrir því hvað fjárstuðningur þeirra skiptir miklu máli og í hvað peningarnir eru nákvæmlega að fara. UNICEF hefur sett fram verðdæmi af hinum ýmsu þáttum neyðaraðstoðar. Af þessum dæmum má sjá hvað það kostar lítið að bjarga mannslífum og bæta líf þúsunda manna.


 


Börn hafa orðið illa úti í hamförunum í Asíu

04.jan.2005

Áætlað er að börn, sem þurfa á neyðaraðstoð að halda, séu nú um 1,5 milljónir. Mörg þeirra hafa misst foreldra sína eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og þurfa nauðsynlega á umhyggju og stuðningi að halda. UNICEF áætlar að meira en einn þriðji þeirra sem létust í flóðunum hafi verið börn.


 


Önnur tegund hamfara gæti fylgt

03.jan.2005

Hætta er á að önnur tegund hamfara bíði þeirra sem björguðust frá flóðunum í Asíu. Um þessar mundir ógna sjúkdómar, hungursneyð og heimilisleysi lífi og bata milljóna manna. UNICEF og aðrar hjálparstofnanir vinna nú hörðum höndum að því að bjarga mannslífum og veita fórnarlömbum flóðanna alla þá aðstoð sem hægt er við erfiðar aðstæður.


 


Neyðaraðstoð vegna flóðanna

29.des.2004

Að minnsta kosti 70 þúsund manns fórust í flóðum við strendur Indlands, Sri Lanka, Taílands, Malasíu, Mayanmar, Bangladess, Indónesíu og fleiri landa við Indlandshaf í kjölfar eins stærsta jarðskjálfta sem um getur í 40 ár. UNICEF er með skrifstofur í öllum þeim löndum sem lentu í fljóðbylgjunni og hefur því getað brugðist skjótt við.


 


UNICEF flytur birgðir til fórnarlamba hamfaranna í Asíu

28.des.2004
UNICEF flytur nú í snarheitum birgðir til þeirra strandsvæða í Asíu sem urðu fyrir flóðbylgjunni vegna jarðskjálftans síðasta sunnudag. „Hundruð þúsunda manna börðust fyrir lífi sínu þegar flóðbylgjurnar skullu á síðastliðinn sunnudag.

 


Nikola segir reynslusögu sína af jarðsprengjum

20.des.2004

Milljónir jarðsprengna og annarra sprengjuleifa eftir stríðsátök víðs vegar um heim ógna öryggi barna. Börn slasast, deyja eða missa foreldra sína af völdum jarðsprengna löngu eftir að átök líða undir lok, samkvæmt heimildum frá UNICEF.


 


The State of the World’s Children skýrslan 2005

09.des.2004

Barnæska er hörmuleg lífsreynsla fyrir helming barna á jörðinni – Þessi mikilvægu ár eru eyðilögð vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis. Þrátt fyrir að það sé nær algilt að vilja vernda börn og æskuárin, þá sýnir ný skýrsla UNICEF að meira en helmingur barna heimsins þjáist vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis.


 


Robbie Williams talar gegn mansali

30.nov.2004

Poppsöngvarinn Robbie Williams hefur veitt UNICEF lið og talar gegn mansali á nýútgefnu myndbandi bresku landsnefndar UNICEF. Myndbandið byggir á ljóði eftir skáldið Simon Armitage og gefur innsýn inn í þær hörmungar sem tengjast mansali.


 


Leikmenn Manchester Utd tala fyrir hönd barna í herferð UNICEF

09.nov.2004

Stjörnuleikmenn Manchester United fótboltafélagsins og framkvæmdastjóri þeirra ljá málefnum barna rödd sína í nýrri sjónvarpsherferð UNICEF. Hin 30 sekúndna löngu myndskilaboð hvetja almenning til þess að styðja við starf UNICEF í baráttunni gegn HIV/alnæmi, mansali og misnotkun barna og stuðningi við menntun stúlkna.


 


Velgjörðasendiherra UNICEF Harry Belafonte

02.nov.2004

Velgjörðarsendiherra UNICEF Harry Belafonte sést hér umkringdur börnum í Senegal, en hann fór þangað fyrr á árinu til að hjálpa UNICEF að vekja athygli á mikilvægi þess að skrá öll börn.


 


Ísland veitir tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar

05.okt.2004

Utanríkisráðuneytið samþykkti föstudaginn 1. október að veita tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar UNICEF í ríkjum Karabíska hafsins í kjölfar eyðileggingar fellibylsins Jeanne þann 18. september sl. Í aðstæðum sem þessum skiptir miklu máli að bregðast skjótt við og hafa íslensk stjórnvöld gert það aðeins viku eftir að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, fór þess á leit við þjóðir heimsins að þær kæmu íbúum Haítí og annarra ríkja Karabíska hafsins til aðstoðar.


 


UNICEF sendir sjúkragögn til Beslan og Vladikavkaz

08.sep.2004

UNICEF hefur sent út tvo bílfarma af sjúkragögnum til sjúkrahúsa í Beslan og Vladikavkaz til þess að annast þau hundruð barna sem særðust í Beslan-gíslatökunni. Gögnin, að virði um 6,5 milljóna íslenskra króna, munu ná til svæðisins í dag, miðvikudaginn 8. september.


 


Yfirlýsing frá Carol Bellamy um gíslatöku barna í Rússlandi

06.sep.2004

„Gíslatakan er ótæk, óskiljanleg, óhugsandi. Harmleikurinn er sá að þessi atburður er einungis sá nýjasti í vaxandi öldu ofbeldis sem beint er gegn börnum. Nú er kominn tími til þess að gera úttekt á og grandskoða heim okkar og hvernig komið er fram við börn,“ sagði Bellamy.


 


Heimsókn í birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn

03.sep.2004

Hólmfríður Anna Baldursdóttir, starfsmaður UNICEF Ísland, heimsótti á dögunum landsnefnd UNICEF í Danmörku og birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Birgðastöðin, sem er 25 þúsund fermetrar, pakkar og sendir vörur til allra heimshorna fyrir UNICEF.


 


Angóla stefnir að því að útrýma mænusótt

29.ágúst.2004

Í sömu viku og mænusóttarfaraldur skall á þremur Afríkulöndum tók Angóla skref á átt að útrýmingu mænusóttar í landinu. Skrefið var tekið með því að hefja bólusetningarherferð þar sem fimm milljónir barna verða bólusettar.


 


Framkvæmdastjóri UNICEF heimsækir fyrrverandi barnahermenn

25.ágúst.2004

Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, er nú í heimsókn í Líberíu. Hún mun heimsækja Jah Tondo-búðirnar fyrir fólk sem hefur flosnað frá heimilum sínum og Don Bosco-áfangaheimilið fyrir börn sem hafa verið neydd til hermennsku.


 


UNICEF styrkir skuldbindingu sína við börn í Írak

18.ágúst.2004

Eitt ár er nú liðið síðan mannskæð sprengjuárás var gerð á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad þar sem margir starfsmenn létu lífið, þar á meðal einn starfsmaður Barnahjálparinnar. UNICEF sendi frá sér tilkynningu í dag um að skuldbinding stofnunarinnar við hag barna í Írak væri sterkari en nokkru sinni.


 


Barátta fyrir lífi meðal fórnarlamba flóða í Bangladess

13.ágúst.2004

Eftir gríðarleg flóð hafa mörg fátækustu börn heims reynt að endurbyggja líf sitt um leið og þau standa frammi fyrir mikilli sjúkdómahættu. Hin gríðarlegu áhrif hinna áframhaldandi monsún rigninga ógna þeim árangri í enduruppbyggingu sem íbúar Bangladess hafa náð.


 


Brjóstagjöf gæti bjargað lífi 1,3 milljóna barna

05.ágúst.2004

UNICEF hefur tekið höndum saman við 120 lönd víðsvegar í heiminum um að halda upp á alþjóðlega viku brjóstagjafar, sem hófst þann 1. ágúst síðastliðinn.


 


Heimsreisa Ewan McGregor með UNICEF

30.jul.2004

Skoski leikarinn Ewan McGregor og besti vinur hans, Charley Boorman, enduðu í gær rúmlega 3ja mánaða, 32.000 km heimsreisu sína á mótorhjólum. Ferðina kölluðu þeir ,,Lengri leiðina” (The Long Way Around) og hófst hún í byrjun maí í Lundúnum.


 


UNICEF bólusetur gegn heilahimnubólgu í Búrúndí

30.jul.2004

Um 24 tilfelli heilahimnubólgu varð vart í norðurhluta Búrúndí í síðustu viku. Líkja hjálparstofnanir SÞ þessu við faraldur og hafa UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og ríkisstjórn Búrúndí stofnað til samstarfs til að reyna að koma í veg fyrir að fleiri börn smitist.


 


Sumarbúðir UNICEF fyrir krakka á Vesturbakkanum og Gaza

21.jul.2004

Með stuðningi UNICEF hafa nú verið settar upp sumarbúðir fyrir krakka sem búa á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu og þar með gefið um 17 þúsund stúlkum og drengjum tækifæri til að leika sér á ný.


 


Hin ,,týndu börn” Úganda

19.jul.2004

UNICEF vakti í dag athygli á eymd þúsunda barna sem hafa verið rænd frá heimilum sínum af uppreisnarhernum, LRA, í Norður-Úganda og gerð að stríðsmönnum og kynlífsþrælum. Þessi harmleikur hefur afmáð hugmyndina um áhyggjulausa og frjálsa barnæsku í huga þúsunda barna og unglinga í Úganda.


 


UNICEF og H&M í samstarfi

08.jul.2004

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og tískukeðjan H&M tilkynntu samstarf sitt við að auka forvarnir gegn HIV og alnæmi og styðja menntun stúlkna. Fyrsta skref samstarfsins felur í sér 107 milljóna króna framlag H&M til þriggja ára verkefnis UNICEF í Kambódíu.


 


Barátta fyrir lífi í Darfur

01.jul.2004

Á síðasta ári hafa 1,2 milljónir manna, helmingurinn af þeim börn, verið flæmd frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan. Þar til í febrúar 2004 var mannúðaraðstoð haldið niðri og átökin hafa síðan þá þróast í það sem Sameinuðu þjóðirnar kalla „versta neyðarástand í heiminum í dag“.


 


Afrískt tónlistarfólk semur lag í von um að geta heft útbreiðslu alnæmis

21.maí.2004

Þekktir afrískir tónlistarmenn komu saman dagana 16.-20. maí í Senegal til að taka upp lag í von um að geta vakið fólk til umhugsunar um HIV/alnæmi og heft útbreiðslu sjúkdómsins í álfunni. Þá er markmiðið einnig að geta dregið úr fátækt um helming fyrir árið 2015, en það er ártal sem miðað er við í Þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.