í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
Þú ert hér:

Um 20% Íslendinga kjósa að að ráðstafa eignum sínum eftir sinn dag með erfðaskrá. Skiljanlega kjósa flestir að arfleiða nánustu ættingja sína en einnig er hægt að ánafna sérstökum manneskjum eða góðgerðarsamtökum hluta eigna. Samkvæmt erfðalögum geta þeir sem eiga maka og niðja aðeins ráðstafað þriðjungi eigna sinna með erfðaskrá. Þeir sem ekki eiga lögerfingja geta hins vegar ráðstafað öllum eigum sínum með erfðaskrá, ellegar renna eignirnar til ríkissjóðs eftir þeirra dag.
Eðlilega eru íslensk erfðalög flestum ókunnug og margir óvissir um hvernig gera skal erfðaskrá. UNICEF á Íslandi hefur því tekið saman upplýsingar um efnið sem við vonum að komi að gagni. Upplýsingar um gerð erfðaskrár er að finna hér. Einnig hefur UNICEF á Íslandi gefið út upplýsingabækling um erfðagjafir sem nálgast má hér á síðunni.
UNICEF á Íslandi ráðleggur öllum þeim sem huga að gerð erfðaskrár að hafa samband við lögfræðing og býðst þeim sem hafa áhuga á að minnast UNICEF í erfðaskrá sinni lögfræðiráðgjöf sér að kostnaðarlausu.
Með því að minnast UNICEF í erfðaskrá þinni getur þú tryggt bágstöddum börnum stuðning eftir þinn dag. Stór sem smá erfðagjöf getur stuðlað að því að börn í fátækari löndum heims fái aðgang að hreinu vatni, næringu, vernd, heilsugæslu og menntun. Þannig getur gjöfin bjargað lífi fjölda barna. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og því eru erfðagjafir einstaklinga gríðarlega mikilvægur stuðningur við að búa börnum betri heim. Hér finnur þú nánari upplýsingar um UNICEF og hvernig erfðagjöfum til UNICEF er varið í þágu barna.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir er þér velkomið að hafa samband við Stefán Inga Stefánsson, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, sem veitir allar nánari upplýsingar um erfðagjafir til UNICEF. Síminn hjá Stefáni er 552 6364 og tölvupóstfangið er stefan@unicef.is.