Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Austur-Kongó

Austur-Kongó er staðsett í Mið-Afríku. Það liggur að Norður-Atlantshafi og á landamæri að Súdan, Miðafríska Lýðveldið, Úganda, Rúanda og Búrúndi.

Landið er það þriðja stærsta í Afríku og tólfta stærsta land í heimi.

Austur-Kongó fékk sjálfstæði frá Belgíu árið 1960.Eftir það hófst mikil pólitísk kreppa þar sem fyrst um sinn var landinu stjórnað af þjóðernissinum. Árin 1971-1997 var landinu stjórnað af einræðisherranum Mobutu. Hann var mikill bandamaður Bandaríkjamanna í Kalda stríðinu.

Nauðgunum beitt í hernaðarlegum tilgangi

Árið 1998 hófust vopnuð átök í Austur-Kongó sem talin eru hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Allt frá upphafi átakanna hefur kynferðisofbeldi gegn konum og stúlkubörnum verið beitt í hernaðarlegum tilgangi; konum og stúlkum er skipulega nauðgað, til að niðurlægja þær og sundra fjölskyldum og samfélögum. UNICEF áætlar að þolendur nauðgana séu mörg hundruð þúsund og að þar af sé yfir helmingurinn börn. Þó stríðinu hafi formlega lokið árið 2003 eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð. „Stúlkur eru í mikilli hættu við daglegar athafnir eins og að sækja eldivið eða vatn og þær lifa í stöðugum ótta,“ sagði framkvæmdastýra UNICEF, Ann M. Veneman nýlega eftir heimsókn til Austur-Kongó. „Það verður að tryggja þeim öruggt umhverfi,“ sagði Veneman.

Íbúafjöldi: 64 milljónir
Höfuðborg: Kinshasa
Barnadauði undir 5 ára: 199/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 126/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 48 ár
GDP á mann: 163 USD
Árleg fólksfjölgun: 2,9%
Íbúar yngri en 18 ára: 35 milljónir
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 61

| Mynd 1 af 8 |
Fólk í flóttamannabúðum í Austur-Kongó