17. október 2016

Akureyri verði fyrsta barnvæna sveitarfélagið á Íslandi

UNICEF á Íslandi og umboðsmaður barna kynntu í morgun verkefnið Barnvæn sveitarfélög, innleiðingarlíkan og vefsíðuna www.barnvaensveitarfelog.is sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kynningin fór fram á Akureyri í fundarsal bæjarstjórnar sveitarfélagsins. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á alþjóðlegu verkefni, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Sveitarfélög sem taka þátt og innleiða Barnasáttmálann geta hlotið viðurkenningu sem barnvæn sveitarfélög frá UNICEF á Íslandi.


UNICEF á Íslandi og umboðsmaður barna kynntu í morgun verkefnið Barnvæn sveitarfélög, innleiðingarlíkan og vefsíðu (www.barnvaensveitarfelog.is) sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kynningin fór fram á Akureyri í fundarsal bæjarstjórnar sveitarfélagsins. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á alþjóðlegu verkefni, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Sveitarfélög sem taka þátt og innleiða Barnasáttmálann geta hlotið viðurkenningu sem barnvæn sveitarfélög frá UNICEF á Íslandi.

Akureyri verður fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að nýta sér líkanið og tekur þátt í tilraunaverkefni við þróun þess til tveggja ára. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi, skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu þess efnis í morgun. Við sama tækifæri veitti Innanríkisráðuneytið Akureyrarbæ 2.6 milljón króna styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þátttöku í verkefninu.

Sveitarfélög eru órjúfanlegur þáttur í innleiðingu Barnasáttmálans
Í kjölfar þess að Alþingi lögfesti Barnasáttmálann í febrúar 2013 hafa skapast umræður um hlutverk og ábyrgð íslenskra sveitarfélaga við innleiðingu sáttmálans. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna og umboðsmaður barna hafa bent á að sveitarfélög séu órjúfanlegur þáttur í innleiðingu hans. Þótt ríkisvaldið beri formlega ábyrgð á að uppfylla Barnasáttmálann verður hann aldrei innleiddur nema í samstarfi við sveitarfélögin. Það eru sveitarfélögin sem annast stærstan hluta þeirrar þjónustu sem hefur bein áhrif á daglegt líf barna.

Með verkefninu vilja umboðsmaður barna og UNICEF svara eftirspurn frá sveitarfélögum landsins um stuðning við innleiðingu Barnasáttmálans. I kjölfar lögfestingarinnar sáttmálans hefur hún aukist hratt.

„Við höfum unnið að þessu verkefni í tvö ár og erum ákaflega stolt af því. Von mín er að barnvæn sveitarfélög marki næsta skrefið í því að tryggja réttindi barna í daglegu lífi og að öll sveitarfélög á Íslandi komi til með að innleiða Barnasáttmálann“ segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.

Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna
Að sveitarfélag innleiði Barnasáttmálann þýðir að það samþykki að nota sáttmálann sem viðmið í starfi sínu og að forsendur hans gangi sem rauður þráður í gegnum þjónustu þess. Líkja má innleiðingunni við að starfsmenn og kjörnir fulltrúar sveitarfélagsins setji upp „barnaréttindagleraugu“ og rýni og skoði verk- og ákvarðanaferla með hliðsjón af sáttmálanum. Barnasáttmálinn er þannig nýttur sem gæðastjórnunarverkfæri í stefnumótun og þjónustu með tilliti til barna. Ferlið við að gerast barnvænt sveitarfélag krefst pólitískrar skuldbindingar, sem er grundvöllurinn fyrir innleiðingu Barnasáttmálans í sveitarfélaginu, ásamt samræmdum aðgerðum þvert á öll svið sveitarfélagsins.

„Barnasáttmálinn boðar byltingarkennda sýn á stöðu barna og gerir þá kröfu að börn njóti í senn umönnunar og verndar samhliða því að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Það er lítil lýðræðisleg hefð fyrir því hér á landi að börn séu höfð með í ráðum í málum sem varða þau með einum eða öðrum hætti. Innleiðing sáttmálans krefst því markvissra aðgerða af hálfu stjórnvalda ef uppfylla á forsendur hans“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi.

Innleiðingarlíkan og viðurkenning
Innleiðingarlíkanið barnvæn sveitarfélög er aðgengilegt á vefsíðunni www.barnvaensveitarfelog.is og geta áhugasamir einstaklingar, kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga nálgast þar allar nauðsynlegar upplýsingar um innleiðingu Barnasáttmálans. Sveitarfélög sem hafa áhuga á að hefja markvisst ferli við innleiðingu sáttmálans geta einnig skráð sig til þátttöku á vefsíðunni. Innleiðingarferlið tekur tvö ár og skiptist í 8 skref. Að því loknu geta sveitarfélögin sótt um viðurkenningu frá UNICEF sem barnvæn sveitarfélög. Viðurkenningin er háð því að starfsfólk UNICEF meti sem svo að innleiðingin hafi verið réttindum barna í sveitarfélaginu til framdráttar og unnið hafi verið eftir hugmyndafræði líkansins. Til að viðhalda viðurkenningunni þarf sveitarfélag að halda innleiðingunni áfram, setja sér ný markmið og óska eftir nýju mati að þremur árum liðnum.

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn