Áherslur UNICEF
Alþjóðleg verkefni UNICEF byggja á Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun. Út frá þeim setur UNICEF sér fimm forgangsverkefni í starfi sem þó tengjast öll innbyrðis. Á fjögurra ára fresti eru þessi forgangsverkefni endurskoðuð og breytt ef þess gerist þörf.
- Lífsafkoma og þroski ungra barna: Að veita yngstu börnunum góða byrjun í lífinu, veita börnum lífsnauðsynlegar bólusetningar og aðra heilsugæslu.
- Menntun og jafnrétti: Að veita öllum börnum, jafnt stúlkum sem drengjum, góða grunnmenntun og ýta undir jafnrétti kynjanna.
- HIV/alnæmi: Að fyrirbyggja HIV-smit, veita umönnun til smitaðra og sjá til þess að börnum sem eru munaðarlaus af völdum alnæmis sé veittur stuðningur og umönnun.
- Barnavernd: Að byggja upp verndandi umhverfi fyrir börn, koma í veg fyrir að þau séu misnotuð, beitt ofbeldi eða vanrækt.
- Réttur barna og þátttaka: Að auka þátttöku barna í samfélaginu og fræðslu um réttindi þeirra.