24. janúar 2019

Meira en 145 þúsund börn Róhingja fara nú í skóla, mörg í fyrsta sinn

Í dag, á alþjóðadegi menntunar, er ánægjulegt að segja frá því að meira en 145 þúsund börn Róhingja eru um þessar mundir að byrja í skóla í Bangladess. Börnin, sem flúðu ofbeldi og ofsóknir í heimalandi sínu Mjanmar, geta nú byrjað nýtt skólaár í námsstöðvum á vegum UNICEF í flóttamannabúðunum í Cox‘s Bazar. Mörg þeirra eru að fara í skóla í fyrsta sinn.

24. janúar 2019

Í dag, á alþjóðadegi menntunar, er ánægjulegt að segja frá því að meira en 145 þúsund börn Róhingja eru um þessar mundir að byrja í skóla í Bangladess. Börnin, sem flúðu ofbeldi og ofsóknir í heimalandi sínu Mjanmar, geta nú byrjað nýtt skólaár í námsstöðvum á vegum UNICEF í flóttamannabúðunum í Cox‘s Bazar. Mörg þeirra eru að fara í skóla í fyrsta sinn.

Frá því í ágúst 2017 hafa yfir 730 þúsund Róhingjar frá Rakhine-héraði í Mjanmar flúið yfir til Bangladess, þar af um 60 prósent börn. Búið er að setja upp 1.600 námsmiðstöðvar í flóttamannabúðunum auk fjölda barnvænna svæða þar sem börn fá óformlega menntun, sálrænan stuðning og geta leikið sér í öruggu umhverfi.

Það hefur verið mikil áskorun fyrir stjórnvöld í Bangladess, UNICEF og samstarfsaðila að tryggja öryggi þessa fjölda barna og tryggja að þau geti haldið áfram námi.

„Sá mikli fjöldi Róhingja sem flúði frá Mjanmar yfir til Bangladess á stuttum tíma krafðist þess að við hefðum hraðar hendur. Við náðum að veita neyðarhjálp og bregðast við grunnþörfum,“ segir Edouard Beigbeder, yfirmaður UNICEF í Bangladess. Aðgerðir sem voru settar í for­gang voru meðal ann­ars að setja upp vatnsdælur og hreinlætisaðstöðu, skima og meðhöndla vannærð börn, tryggja börn­um heilsu­gæslu, koma upp barn­væn­um svæðum og veita sál­ræn­a aðstoð. Fljótt var hafist handa við að setja upp námsmiðstöðvar í flóttamannabúðunum þannig að börnin gætu farið í skóla. „Nú erum við að auka aðstoð okkar enn frekar til þess að ná til fleiri barna en nokkru sinni fyrr, og einbeitum okkur um leið að því að bæta gæði þeirrar menntunar sem hvert barn fær.“

Á síðasta ári varaði UNICEF við því að heil kynslóð Róhingja væri í hættu vegna skorts á tækifærum til menntunar fyrir þau börn og ungmenni sem búa í flóttamannabúðum í Cox‘s Bazar og samfélögum þar í kring. Til að bregðast við því hafa UNICEF og samstarfsaðilar sett upp 1.600 námsmiðstöðvar sem veita börnum sem flúðu ofbeldi og ofsóknir í heimalandinu, nauðsynlega menntun og öryggi.

UNICEF stefnir að því að auka námsmiðstöðvarnar í 2.500 til að ná til enn fleiri barna sem skortir aðgengi að menntun. Áhersla er einnig lögð á að ná til eldri barnanna og ungmenna með tækifærum til verkmenntunar. Þessi hópur er sérstaklega viðkvæmur og sá sem á hvað mesta hættu á að einangrast, verða fyrir ofbeldi og misbeytingu, vera seld í þrælkunarvinnu eða giftast barnung.

UNICEF ítrekar hversu mikilvægt það er að huga að langtíma úrræðum og fjárfesta í menntun og tækifærum fyrir öll börn á svæðinu, bæta gæði kennslunnar og skapa tækifæri til að mæta þörfum stúlkna og unglinga.

UNICEF á Íslandi stóð fyrir neyðarsöfnun fyrir Róhingja í lok árs 2017 og framlög frá almenningi hér á landi nýttust í að veita börnum sem voru nýkomin í flóttamannabúðirnar lífsnauðsynlega hjálp. Framlög heimsforeldra hafa einnig runnið til neyðaraðgerða UNICEF fyrir börn á flótta frá Mjanmar.

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn